Heimavellir, stærsta leigufélag landsins sem starfar á almennum markaði, gjaldfærði alls 24,6 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi vegna greiðslna til Guðbrands Sigurðssonar, sem hætti störfum hjá félaginu 31. mars, eða á síðasta degi fyrsta ársfjórðungs.
Greiðslurnar, sem innihalda einnig launatengd gjöld, voru í samræmi við ráðningarsamning Guðbrands. Heimavellir greiddu alls tæplega 40,8 milljónir króna í laun og mótframlag í lífeyrissjóð fyrir Guðbrand á árinu 2018, sem var síðasta fulla árið sem hann starfaði fyrir félagið. Laun hans voru rúmlega 2,9 milljónir króna á mánuði en auk þess greiddu Heimavellir 5,7 milljónir króna í mótframlag í lífeyrissjóð í fyrra. Miðað við það hefur Guðbrandur fengið um 60 prósent af ársgreiðslum vegna starfsloka sinna.
Illa lukkuð skráning
Heimavellir voru skráðir á markað vorið 2018. Ári síðar reyndu lykilhluthafar að afskrá félagið, en Kauphöll Íslands kom í veg fyrir það. Þær skýringar voru gefnar fyrir þeirri vegferð að Heimavellir hafi ekki fengið góðar móttökur hjá stærstu fjárfestum landsins, sérstaklega lífeyrissjóðum, og að endurfjármögnunartilburðir Heimavalla hafi ekki staðið undir væntingum.
Markavirði Heimavalla í dag er um 13,5 milljarðar króna. Eigið fé félagsins, munurinn á skuldum og eignum þess, er hins vegar mun hærri tala eða 18,8 milljarðar króna.
Eru að selja eignir hratt
Alls eru ríflega 400 íbúðir í eigu Heimavalla skilgreindar eða verða skilgreindar til sölu í nánustu framtíð. Bókfært virði þeirra er um 14,5 milljarðar króna og áætlað er að sala þeirra muni losa allt að fjóra milljarða króna í umfram eigið fé. Því eigið fé verður skilað til hluthafa með endurkaupum á hlutabréfum í Heimavöllum eða með arðgreiðslum.
Þetta kom fram í fjárfestakynningu vegna hálfs árs uppgjörs Heimavalla sem birt var á föstudag. Á hluthafafundi í Heimavöllum sem haldinn var á föstudag var samþykkt að uppfæra endurkaupaheimild félagsins þannig að því verði heimilt að kaupa allt að þrjú prósent í sjálfu sér af hluthöfum á næstu átta mánuðum.
Heimavellir munu eiga alls um 1.700 íbúðir í lok þessa árs en þeim á að fækka með eignasölum í um 1.400 fyrir lok árs 2020.