Árvakur hefur tapað 2,2 milljörðum króna frá 2009

415 milljóna króna tap á rekstri Árvakurs, útgáfufélagi Morgunblaðsins, á síðasta ári var staðfest í frétt í blaðinu í dag. Hluthafar hafa lagt félaginu til 1,6 milljarða króna á áratug.

Morgunblaðshúsið
Auglýsing

Árvak­ur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, mbl.is og K100, tap­aði 415 millj­ónum króna í fyrra. Þetta er stað­fest í frétt sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í morg­un. Kjarn­inn hafði greint frá því 10. ágúst síð­ast­lið­inn að lesa mætti það út úr árs­reikn­ingi eins stærsta hlut­hafa eig­anda Árvak­urs að tapið hefði verið um 414 millj­ónir króna. 

Árvakur hefur glímt við mik­inn halla­­­­rekstur á und­an­­­­förnum árum og hlut­hafar þess hafa ítrekað þurft að leggja útgáf­unni til fé.

Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstr­inum árið 2009 og fram til loka árs 2018 tap­aði félagið um 2,2 millj­­­­­örðum króna miðað við ofan­­greinda útreikn­inga á tapi Árvak­­urs í fyrra. Tapið eykst umtals­vert á milli ára, en Árvakur tap­aði 284 millj­­ónum króna árið 2017. 

Auglýsing

Í frétt Morg­un­blaðs­ins er haft eftir Har­aldi Johann­essen, fram­kvæmda­stjóra Árvak­urs og ann­ars rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, að rekstr­ar­um­hverfið sé erfitt en að búið sé að ráð­ast í umfangs­miklar aðgerðir til að hag­ræða í rekstri félags­ins sem séu farnar að skila árangri. „Sam­keppn­in við Rík­­is­út­­varpið hef­ur orðið sí­­fellt erf­ið­ari, en nei­­kvæð umræða á vinn­u­­mark­aði, sem enn held­ur áfram þó að stærstu aðilar á vinn­u­­mark­aðnum hafi samið, hef­ur auk stórra áfalla í at­vinn­u­líf­inu haft veru­­lega nei­­kvæð áhrif á aug­lýs­inga­­mark­aði og þar með á rekst­ur fjöl­miðla.“

Hlutafé aukið í byrjun árs

Kjarn­inn greindi frá því í febr­­­úar síð­­­ast­liðnum að hlutafé í Þór­s­­­mörk, eig­anda Árvak­­­urs, hefði verið aukið um 200 millj­­­ónir króna þann 21. jan­úar 2019. Auk þess var sam­­­­þykktum félags­­­­ins breytt á þann veg að stjórn þess er heim­ilt að hækka hluta­­­­féð um allt að 400 millj­­­­ónir króna til við­­­­bótar með útgáfu nýrra hluta. Sú heim­ild gildir til árs­loka 2019.

Kaup­­­fé­lag Skag­­­firð­inga (KS) og félög tengd Ísfé­lagi Vest­­­manna­eyja lögðu til 80 pró­­­sent þeirra 200 millj­­­óna króna sem settar voru inn í rekstur Árvak­­­urs. Alls lögðu þessar tvær blokkir til 160 millj­­­ónir króna af millj­­ón­unum 200. Þær 40 millj­­­ónir króna sem upp á vant­aði dreifð­ust á nokkra smærri hlut­hafa en eng­inn nýr hlut­hafi bætt­ist í hóp­inn við hluta­fjár­­­aukn­ing­una. 

Alls tóku fimm skráðir hlut­hafar ekki þátt í hluta­fjár­­­aukn­ing­unni og minn­k­aði hlut­­­falls­­­leg eign þeirra sam­hliða henni. Á meðal þeirra var félagið Ram­ses II ehf., í eigu Eyþórs Arn­alds, odd­vita Sjálf­­­stæð­is­­­flokks í borg­­­ar­­­stjórn Reykja­vík­­­­­ur. Eign­­­ar­hlutur Ram­ses hefur skroppið saman úr 22,87 pró­­­sentum í 20,05 pró­­­sent.  Stundin hefurgreint frá því að Eyþór hafi keypt hlut sinn í Árvakri með 325 milljón króna kúlu­láni frá félagi í eigu Sam­herja. Þar hefur meðal ann­­­ars komið fram að Eyþór hafi aldrei viljað upp­­­lýsa um hvernig hann hafi fjár­­­­­magnað kaupin á hlutnum og sagt að við­­­skiptin væru trún­­­að­­­ar­­­mál.

Flestir minni eig­endur Þór­s­­­merkur eru tengdir sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegs­­­­fyr­ir­tækj­­­­um.

Færðu niður hluta­­féð um millj­­arð

Frá því að nýir eig­endur tóku við Árvakri árið 2009 hafa þeir lagt félag­inu til rúm­­­lega 1,6 millj­­­arð króna. Þar af nemur fram­lagt hlutafé KS um 324 millj­­­ónum króna og fram­lagt hlutafé tveggja félaga sem tengj­­­ast Ísfé­lag­inu um 484 millj­­­ónum króna. Annað þeirra er félagið Hlynur A en hitt er Ísfé­lagið sjálft.

Í maí síð­­ast­liðnum var ákveðið að lækka hlutafé í Þór­s­­mörk  um einn millj­­arð króna. Sam­­kvæmt til­­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­­skráar var það gert til jöfn­unar á tapi. 

Við það lækk­­aði hlutafé Þór­s­­merkur úr 1,6 millj­­arði króna í 606 millj­­ónir króna. Það þýðir að eig­endur félags­­ins hafa afskrifað millj­­arð af því fjár­­­magni sem þeir settu inn í félag­ið. 

Eign­­­ar­hald Þór­s­­­merk­ur, eig­anda Árvak­urs, er eft­ir­far­andi:

  • Ram­ses II ehf., eig­andi Eyþór Lax­­­dal Arn­alds, 20,05 pró­­­sent
  • Íslenskar sjá­v­­­­ar­af­­­urðir ehf.,  ­for­sv.m. Sig­­­ur­jón Rafns­­­son, 20,00 ­pró­­­sent
  • Hlyn­ur A ehf., ­for­sv.­mað­ur­ Guð­­­björg Matt­h­í­a­s­dótt­ir, 16,45 ­pró­­­sent
  • Ísfé­lag Vest­­­manna­eyja hf., ­for­sv.­mað­ur­ ­Stefán Frið­­­riks­­­son, 13,43 ­pró­­­sent
  • Legalis s­f., ­for­sv.­mað­ur­ ­Sig­­­ur­­­björn Magn­ús­­­son, 12,37 ­pró­­­sent
  • Rammi hf., ­for­sv.­mað­ur­ Ólafur Mart­eins­­­son, 6,14 ­pró­­­sent
  • Þingey ehf., ­for­sv.­mað­ur­ Að­al­­­steinn Ing­­­ólfs­­­son, 3,59 ­pró­­­sent
  • Stál­­­skip ehf., ­for­sv.­mað­ur­ Hall­­­dór Krist­jáns­­­son, 3,08 ­pró­­­sent
  • Brekku­hvarf ehf., ­for­sv.­mað­ur­ Ás­­­geir Bolli Krist­ins­­­son, 2,05 ­pró­­­sent
  • Fari ehf., ­for­sv.­mað­ur­ Jón Pálma­­­son, 1,54 ­pró­­­sent
  • Hrað­fryst­i­­­húsið – Gunn­vör hf., ­for­sv.­mað­ur­ Einar Valur Krist­jáns­­­son, 1,30 ­pró­­­sent

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent