Kadeco fær aukið hlutverk við ráðstöfum lóða ríkisins

Fyrir tveimur árum var pólitískur vilji til þess að leggja niður Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar. Í nýju fjárlagafrumvarpi er félaginu hins vegar tryggt umfangsmikið hlutverk við að ráðstafa lóðum og landi í eigu ríkisins.

Ásbrú
Auglýsing

Í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2020 er lagt til að gengið verði til samn­inga við Reykja­nes­bæ, Suð­ur­nesjabæ og Isa­via ohf. um skipu­lag og þróun lands í nágrenni Kefla­vík­ur­flug­vall­ar. „Jafn­framt að ganga til samn­inga við Þró­un­ar­fé­lag Kefla­vík­ur­flug­vallar ohf. um umsjón og fjár­mögnum verk­efn­is­ins og um fyr­ir­komu­lag og ráð­stöfun á lóðum og landi í eigu rík­is­ins.“

 Þró­un­ar­fé­lag­ið, sem heitir Kadeco, mun því fá aukið hlut­verk við ráð­stöfun á lóðum og landi í eigu rík­is­ins á svæð­inu við og í kringum Kefla­vík­ur­flug­völl. 

Það er umtals­verður við­snún­ingur frá fyrri áformum um félag­ið, en til stóð að leggja það niður fyrir tveimur árum síð­an.

Upp­runa­lega hlut­verk­inu lokið

Kjarn­inn greindi frá því í lok júní 2017 að til stæði að leggja starf­­­semi Kadeco niður í þeirri mynd sem það hafði starf­að. Skipt hafði verið um stjórn í félag­inu mán­uði áður og tekin hafði verið ákvörðun um að upp­­­runa­­­legu hlut­verki þess, að selja fast­­­eignir á Ásbrú, væri lok­ið. Vilji væri þó að taka upp við­ræður við heima­­­menn um hvernig væri hægt end­­­ur­­­skoða starf­­­sem­ina með það í huga.

Auglýsing
Bene­dikt Jóhann­es­­son, þáver­andi fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði við Kjarn­ann að hann hafi lýst þess­­­ari skoðun sinni á fundum með starfs­­­fólki Kadeco í lok jún­í­mán­að­ar 2017. 

Sum­arið 2018 var hins vegar skip­aður nýr stjórn­ar­for­maður yfir Kadeco, Ísak Ernir Krist­ins­son. Hann var til­nefndur í starfið af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Ísak var 24 ára þegar hann tók við starf­inu, starf­aði sem flug­þjónn hjá WOW air og stund­aði háskóla­nám í við­skipta­fræði. Hann hafði auk þess verið virkur í flokks­starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins um ára­bil og gegnt trún­að­ar­störfum í ung­linga­hreyf­ingu flokks­ins. Ísak sagð­ist í sam­tali við RÚV skilja gagn­rýni á að svo ungur maður væri orð­inn stjórn­ar­for­maður í mik­il­vægu fyr­ir­tæki en laun stjórn­ar­for­manns á mán­uði eru 270 þús­und krón­ur. 

Ljóst var á þessum tíma að hug­myndir um fram­tíð Kadeco væru að breyt­ast. Engin áform voru lengur til staðar um að hætta starf­semi heldur væri framundan skoðun á hlut­verki „fé­lags­ins við áfram­hald­andi þróun á landi rík­is­ins í kringum Kefla­vík­ur­flug­völl þar sem meðal ann­ars verður horft til sam­starfs Kadeco við sveit­ar­fé­lög og aðra lyk­il­að­ila á svæð­in­u.“

Unnið eftir Aer­otropolis hug­mynda­fræði

Þann 26. júní síð­ast­lið­inn var svo skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um sam­starf um skipu­lag, þró­un, hag­nýt­ingu og mark­aðs­setn­ingu lands í nágrenni Kefla­vík­ur­flug­vall­ar. Undir hana skrif­uðu Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ásamt full­trúum Isa­via, Reykja­nes­bæjar og Suð­ur­nesja­bæj­ar. Í frétta­til­kynn­ingu sem Marta Jóns­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Kadeco, sendi frá sér af þessu til­efni kom fram að frá stofnun hafi Kadeco unnið mark­visst að því að laða að erlenda fjár­fest­ingu og alþjóð­leg fyr­ir­tæki á svæðið sem félagið fer með.

Auglýsing
Þar hafi svokölluð Aer­otropolis hug­mynda­fræði verið höfð að leið­ar­ljósi, en hún byggir á því að skapa megi mikil verð­mæti úr landi við flug­völl þar sem alþjóð­leg fyr­ir­tæki kjósi að stað­setja sig við vel tengda flug­velli. „Starf­semi þeirra fyr­ir­tækja sem sótt hefur verið hvað harð­ast eftir hefur verið greind með til­liti til stefnu Kadeco um hvers konar starf­semi er ákjós­an­leg­ust á svæð­inu. Gagna­ver Verne Global og þör­unga­verk­smiðja Alga­líf eru kannski skýr­ustu dæmin um slík fyr­ir­tæki en þau skara fram úr á alþjóð­legum mæli­kvarða á sínu svæði. Þau hafa fjár­fest fyrir millj­arða króna og verið sannur fengur fyrir svæð­ið[...]Fleiri fyr­ir­tæki af þessum skala, sem og hót­el­keðj­ur, dreif­ing­ar­að­ilar og hátækni­fyr­ir­tæki munu kjósa að stað­setja sig við Kefla­vík­ur­flug­völl ef boðið verður upp á aðlað­andi umhverfi, bæði í eig­in­legum og við­skipta­legum skiln­ing­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent