Útgerðarfélag Reykjavíkur, sem hét um árabil Brim, hagnaðist um 11,5 milljónir evra, eða um 1,5 milljarða króna miðað við gengi evru um síðustu áramót, á árinu 2018. Eignir félagsins voru metnar á 447,3 milljónir evra, eða 59,7 milljarða króna.
Þar munaði mest um eignarhlutinn í HB Granda, sem nýverið var endurnefnt Brim, sem bókfærður var á um 24,8 milljarða króna miðað við árslokagengi á evru. Það er rúmlega 15 prósent hærra verð en skráð markaðsverð hlutarins var á reikningsskiladegi. Í ársreikningi segir að eignarhluturinn hafi verið færður samkvæmt hlutdeildaraðferð. „Stjórnendur hafa framkvæmt virðisrýrnunarpróf og niðurstöður þess er að ekki er virðisrýrnun á eignarhlutnum.“ Á móti kemur að fyrirtækið seldi hlut sinn í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum og Ögurvík á árinu 2018.
Þetta kemur fram í ársreikningi Útgerðarfélags Reykjavíkur sem skilað var inn til ársreikningaskráar í lok síðasta mánaðar.
Eignarhlutir í dótturfélögum bókfærðir á 280 milljónir
Útgerðarfélag Reykjavíkur hét um árabil Brim. Nafni félagsins var breytt þegar það keypti ráðandi hlut í HB Granda í fyrra. Nafni HB Granda var svo breytt í Brim á hluthafafundi í ágúst 2019. Guðmundur Kristjánsson, sem er endanlegur eigandi að um 75 prósent alls hlutafjár í Útgerðarfélagi Reykjavíkur og tók sjálfur við sem forstjóri HB Granda eftir innkomu sína þar, hefur ávallt verið kenndur við það nafn og kallaður Guðmundur í Brimi.
Útgerðarfélag Reykjavíkur er risastórt fyrirtæki. Rekstrartekjur þess á árinu 2018 voru, samkvæmt nýlega birtum ársreikningi, um 22,4 milljarðar króna ef miðað er við gengi evru um síðustu áramót. Hagnaður af starfseminni var, líkt og áður sagði, um 1,5 milljarður króna.
Eigið fé fyrirtækisins var 27,3 milljarðar króna í árslok 2018 jókst á milli ára og skuldir þess grynnkuðu umtalsvert, eða um 6,5 milljarða króna. Á árinu 2019 á Útgerðarfélag Reykjavíkur að greiða um 7,7 milljarða króna af langtímaskuldum til lánastofnana. Skuldirnar voru þó enn umtalsverðar í árslok, alls um 32,4 milljarðar króna.
Ljóst er að salan á Ögurvík seint á árinu 2018 hefur létt á stöðu Útgerðarfélags Reykjavíkur.
Virði sölufélaganna, sem nýverið voru seld til Brims á 4,4 milljarða króna, eru ekki tilgreind sérstaklega í ársreikningnum. að öðru leyti en að nafnverð þeirra er gefið upp. Eignarhlutir Útgerðarfélags Reykjavíkur í öðrum félögum en hlutdeildarfélögum, sem eru þá umrædd sölufélög og önnur sem fyrirtækið átti að öllu leyti, voru bókfærðir á 2,1 milljónir evra, eða um 280 milljónir króna miðað við gengi evru um síðustu áramót.