Tveir framkvæmdastjórar hættir hjá Arion banka í vikunni

Enn ein breytingin er framundan á framkvæmdastjórn Arion banka. Nú hefur verið tilkynnt um að framkvæmdastjóri upplýsingasviðs muni láta af störfum í næstu viku.

RakelOttarsdottir.jpg
Auglýsing

Rakel Ótt­ars­dótt­ir, sem verið hefur fram­kvæmda­stjóri upp­lýs­inga­tækni­s­viðs Arion banka frá 2016, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá bank­an­um. Síð­asti starfs­dagur hennar verður föstu­dag­inn 20. sept­em­ber, eða eftir átta daga.

Rakel hefur starfað hjá bank­anum frá árinu 2005 og setið í fram­kvæmda­stjórn bank­ans frá árinu 2011 þegar hún tók við starfi fram­kvæmda­stjóra þró­un­ar- og mark­aðs­sviðs. 

Fyrir þremur dögum síðan var greint frá því að Jón­ína S. Lár­us­dótt­ir, sem verið hefur fram­­kvæmda­­stjóri lög­­fræð­is­viðs Arion banka um ára­bil, muni láta af störfum hjá bank­­anum föst­u­dag­inn 13. sept­­em­ber. Ekki var til­­­greint í frétta­til­kynn­ingu frá bank­­anum af hverju Jón­ína er að láta að störf­­um. 

Auglýsing

Jón­ína hefur verið fram­­kvæmda­­stjóri lög­­fræð­is­viðs og setið í fram­­kvæmda­­stjórn bank­ans í um níu ár eða frá nóv­­em­ber 2010. 

Frétta­blaðið greindi frá því í gær að Birna Hlín Kára­dótt­ir, sem starfað hefur sem yfir­lög­fræð­ingur Fossa mark­aða í tæp fjögur ár, hafi sagt upp störfum hjá verð­bréfa­fyr­ir­tæk­inu og væri á leið til starfa hjá Arion banka. Hún tæki þar við hlut­verki Jón­ínu.

Umtals­verðar hrær­ingar hafa verið í fram­­kvæmda­­stjórn Arion banka á þessu ári. Bene­dikt Gísla­­son var ráð­inn í starf banka­­stjóra bank­ans í jún­í­­lok og tók við því starfi 1. júlí síð­­ast­lið­inn. Hann tók við af Hös­k­uldi H. Ólafs­­syni, sem hafði verið banka­­stjóri í níu ár. Hösk­­uldur fékk 150 millj­­óna króna starfs­loka­greiðslu þegar hann hætti störf­­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent