Efling hefur vísað kjaradeilu félagsins við Reykjavíkurborg til ríkissáttasemjara. Formaður Eflingar sendi ríkissáttasemjara skriflega tilkynningu þess efnis síðdegis í gær, 16. september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stéttarfélaginu.
Efling lítur svo á að viðræður við Reykjavíkurborg hafi reynst árangurslausar en þær hafa staðið síðan í febrúar á þessu ári. Kjarasamningurinn sem í hlut á rann út þann 31. mars síðastliðinn.
Eitt helsta ágreiningsmálið í viðræðunum felur í sér kröfu um styttingu vinnuvikunnar, samkvæmt Eflingu. Reykjavíkurborg hefur lýst því yfir að tilraunaverkefni á þessu sviði hafi skilað jákvæðum árangri. Engu að síður hefur ekki náðst viðunandi árangur í samtali þar um milli deiluaðila. Þá hefur Eflingu ekki tekist að koma að ýmsum öðrum þáttum í kröfugerð sinni.
Þykir miður að skynja ekki raunverulegan samningsvilja frá borginni
„Við erum með öfluga, fjölmenna og samhenta samninganefnd skipaða fólki með mikla starfsreynslu hjá borginni. Hún var einróma sammála því að vísa viðræðum, af þeirri einföldu ástæðu að kröfugerðin okkar sem skrifuð var með almennum félagsmönnum fæst í raun ekki rædd,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar við tilefnið.
„Okkur þykir miður að hafa ekki skynjað raunverulegan samningsvilja frá borginni í þessum viðræðum. Með því að vísa vonumst við til að breyta því.“