Bergþór Ólason orðinn nefndarformaður á ný

Nýr formaður umhverfis- og samgöngunefndar var kjörinn í dag með tveimur atkvæðum.

Bergþór Ólason
Auglýsing

Berg­þór Óla­son, þing­maður Mið­flokks­ins, er orð­inn for­maður umhverf­is- og sam­göngu­nefndar að nýju. Hann hlaut tvö atkvæði, frá sjálfum sér og sam­flokks­manni sínum Karli Gauta Hjalta­syni, í kosn­ingu á for­manni nefnd­ar­innar fyrr í dag. Aðrir nefnd­ar­menn sátu hjá við atkvæða­greiðsl­una sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. 

Fresta þurfti fundi nefnd­ar­innar í gær eftir að gerð hafði verið til­laga um að Karl Gauti yrði frekar for­maður hennar en Berg­þór, án þess að Karl Gauti sækt­ist eftir því. Aðrir stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn í nefnd­inni voru mót­fallnir því að Berg­þór yrði for­maður nefndar í ljósi þess að hann er einn þeirra sem fór mest fyrir á Klaust­ur­bar í nóv­em­ber 2018 og siða­nefnd Alþingis taldi hann hafa brotið siða­reglur þings­ins með fram­ferði sín­u. 

Berg­þór steig til hliðar sem for­maður umhverf­is- og sam­göngu­nefndar í febr­úar síð­ast­liðnum vegna Klaust­urs­máls­ins og tók Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við for­mennsku tíma­bund­ið. Nefndin hafði þá verið óstarf­hæf um tíma en sam­kvæmt sam­komu­lagi stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna átti nefnd­ar­for­mennska í þess­ari nefnd að koma í hlut Mið­flokks­ins. Aðrir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar en Mið­flokk­ur­inn vildu hins vegar ekki að Berg­þór yrði for­maður hennar að nýju vegna Klaust­ur­máls­ins og að ein­hver annar úr Mið­flokknum sem hefði ekki gerst brot­legur við siða­reglur Alþingis myndi taka hana að sér. Á það féllst Mið­flokk­ur­inn ekki.

Auglýsing

Kastaði rýrð á Alþingi og skað­aði ímynd þess

­Siða­­nefnd fór yfir ummæli Berg­þórs um Ingu Sæland, for­­mann Flokks fólks­ins, Írisi Róberts­dótt­­ur, bæj­­­ar­­stjóra í Vest­­manna­eyj­um, Albertínu Frið­­­björgu Elí­a­s­dótt­­ur, þing­­mann Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, og Lilja Alfreðs­dótt­­ur, mennta­­mála­ráð­herra.

Í áliti siða­nefndar Alþingis um fram­ferði Berg­þórs á Klaustri sagði að ummæli sem hann við­hafði þarf væru „öll af sömu rót­inni sprott­in“. Þau væru ósæmi­­­leg og í þeim fælist van­virð­ing er lyti að kyn­­­ferði þeirra kvenna sem um er rætt. Einnig væru þau til þess fallin að kasta rýrð á Alþingi og skaða ímynd þess.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent