Skeljungur fær undanþágu vegna kaupa á Basko

Samkeppniseftirlitið hefur heimilað samruna Skeljungs og Basko með skilyrðum. Kaupverðið er 30 milljónir króna og yfirtaka skulda.

Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs, stýrði áður Basko.
Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs, stýrði áður Basko.
Auglýsing

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur veitt Skelj­ungi hf. und­an­þágu frá banni við fram­kvæmd sam­runa vegna kaupa félags­ins á öllu hlutafé í Basko ehf. Í und­an­þág­unni felst ann­ars vegar að heim­ilt er að fram­kvæma sam­run­ann með þeim skil­yrðum að ekki verði gripið til neinna ráð­staf­ana, sem koma í veg fyrir að hægt verði að vinda ofan af sam­run­an­um, verði það nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á síð­ari stigum að hann sé til þess fall­inn að raska sam­keppn­i. 

Hins vegar felst í henni að gripið verði til ráð­staf­ana til að tryggja að við­kvæmar við­skipta­upp­lýs­ingar ber­ist ekki á milli sam­runa­að­ila. Unnið er að útfærslu þeirra ráð­staf­ana í sam­starfi við Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ið.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá Skelj­ungi sem birt var í Kaup­höll Íslands fyrr í dag. 

Auglýsing

Skelj­ung­­ur, sem er skráð í íslensku kaup­höll­ina, til­kynnti á mánu­dag að félagið hefði keypt allt hlutafé í Basko, sem á fimm 10-11 versl­­anir og rekur fjórtán versl­­anir undir merkjum Kvikk sem reknar eru við bens­ín­­stöðvar Skelj­ungs.  Þá á Basko veit­inga­­stað­inn Bad Boys Burgers & Grill, versl­un­ina Kvos­ina, auk mat­vöru­versl­ana í Reykja­­nesbæ og á Akur­eyri. Alls 50 pró­­sent eign­­ar­hlutur Basko í Eldum Rétt er und­an­skil­inn frá kaup­un­­um. 

Sam­­kvæmt til­­kynn­ingu verður kaup­verði 30 millj­­ónir króna auk þess sem yfir­­­teknar verða vaxta­ber­andi skuldir upp á 300 millj­­ónir króna. Kaupin eru bundin sam­­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og ýmsum öðrum fyr­ir­vörum, meðal ann­­ars að upp­­lýs­ingar frá selj­anda um áætlað upp­­­gjör stand­ist. 

Árni Pétur Jóns­­son, sem ráð­inn var for­­stjóri Skelj­ungs í síð­­asta mán­uði, stýrði áður Basko og átti hlut í fyr­ir­tæk­in­u.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent