Segist ekki hafa sagt að það væri „grasserandi almenn“ spilling í lögreglunni

Ríkislögreglustjóri segir orð hans um spillingu hafi verið oftúlkuð. Hann fær stuðning í leiðara Morgunblaðsins þar sem segir að lögregla hefði ráðið „úrslitum í „búsáhaldabyltingu“ um að tryggja að múgurinn bryti ekki niður lýðræðislegar stofnanir“.

Haraldur Johanessen ríkislögreglustjóri.
Haraldur Johanessen ríkislögreglustjóri.
Auglýsing

Har­ald­ur Johann­es­sen rík­­is­lög­­reglu­­stjóri seg­ir um­­mæli sín um spill­ingu í lög­­regl­unni í við­tali við Morg­un­blaðið fyrir tæpum tveimur vikum síðan hafi meðal ann­ars byggt á því sem fram kom í skýrslu GRECO um varnir gegn spill­ingu hjá æðstu hand­höf­um fram­­kvæmd­­ar­­valds og lög­­­gæslu á Íslandi. Ummælin hafi verið oftúlkuð i umræð­unni og að hann hefði ein­ungis verið að vísa til ábend­inga og við­var­ana sem sett voru fram í skýrsl­unni, auk ein­stakra mála sem komið hafa upp á und­an­förnum árum. „Orð mín um spill­ingu hafa fengið óvænt flug og verið út­­færð í þá veru að ég hafi sagt að það sé grass­er­andi al­­menn spill­ing inn­­an lög­­regl­unn­­ar. Það hef ég aldrei sagt, hvorki í þessu við­tali né ann­­ars stað­ar. Þannig að þeir sem halda þessu fram ættu að lesa þetta við­tal.“ 

Þetta kemur fram í við­tali við Har­ald í Morg­un­blað­inu í dag.

Í vik­unni lýstu átta af níu lög­­­reglu­­stjórum lands­ins og for­­manna­fundur Lands­­sam­­bands lög­­­reglu­­manna yfir van­­trausti á Har­ald. Þeir báru við­talið í Morg­un­blað­inu fyrir sig sem lyk­ilá­stæðu þeirrar ákvörð­un­ar. Í við­tal­inu sagði Har­aldur meðal ann­ars að verið væri að reyna að hrekja hann úr emb­ætti með því að dreifa vís­vit­andi rang­­færslum og róg­­burði um hann. Þeir sem væru að gera það væru lög­­­reglu­­menn sem teldu sig eiga harma að hefna gegn hon­um, meðal ann­­ars vegna þess að hann hafi gripið inn í vegna starfs­hátta eða fram­komu þeirra eða vegna þess að þeir hafi ekki fengið stöður sem þeir sótt­­ust eft­­ir. Ef til starfs­loka hans kæmi myndi það kalla á enn ít­­­ar­­­legri um­­­fjöll­un af hans hálfu um valda­bar­átt­una bak við tjöld­in.

Auglýsing

Þá sagði Har­aldur að gagn­rýni hans á fram­­göngu lög­­­reglu­­manna ætti þátt í því sem hann kallar aðför gegn sér. Hann sagð­ist hafa bent á að spill­ing ætti ekki að líð­­ast innan lög­­regl­unn­­ar. „Hluti af umræð­unni sem er að brjót­­­ast fram núna er kannski einnig vegna þeirr­ar af­­­stöðu minn­­­ar. Ég hef til dæm­is bent á að það fari ekki sam­an að lög­­­­­reglu­­­menn séu með­fram starfi sínu í póli­­­tísku vaf­stri. Það fer að mínu viti ekki sam­­­an.“ Umræða um bíla­­­mál lög­­­regl­unn­ar væri hluti af þeirri rógs­her­­­ferð að óreiða sé í fjár­­­­­mál­um rík­­­is­lög­­­reglu­­­stjóra.

Tekið til varna fyrir Har­ald í leið­ara­skrifum

Það er einnig tekið til varna fyrir Har­ald í leið­ara Morg­un­blaðs­ins í dag, sem er í aldreif­ingu líkt og alla fimmtu­daga. Í leið­ar­an­um, sem skrif­aður er annað hvort af Davíð Odds­syni eða Har­aldi Johann­es­sen alnafna rík­is­lög­reglu­stjóra, að heldur ólík­legt sé að almenn­ingur viti út á hvað upp­hlaupið gegn rík­is­lög­reglu­stjóra geng­ur. „Jafn­vel þeir sem fylgj­ast betur með helstu fréttum en aðrir og fá borgað fyrir það sjá enga glóru. Það hefur ekk­ert­komið fram í öllum þessum fréttum um að þessi emb­ætt­is­maður hafi brotið af sér. Þeir sem hafa lotið aga­við­ur­lögum af hans hendi neita því ekki að slík til­efni hafi verið fyrir hendi. Og fjarri er því að við­ur­lögin sýn­ist hafa verið úr takti við til­efn­in. Einu efn­is­at­riðin sem að öðru leyti hafa verið nefnd í umræð­unni snú­ast um bún­inga og aldur og við­hald bif­reiða­flota.“

Leið­ara­höf­und­ur­inn segir síðan að „hin fámenna hug­rakka íslenska lög­regla réði úrslitum í „bús­á­halda­bylt­ingu“ um að tryggja að múg­ur­inn bryti ekki niður lýð­ræð­is­legar stofn­anir

þjóð­ar­inn­ar. Sú hetju­dáð lifir í minn­ing­unni en jafn­framt fram­koma nokk­urra kjör­inna

full­trúa á Alþingi sem lögðu fjand­mönnum lýð­ræð­is­ins lið gegn lög­regl­unni.

Íslandi tókst á fyrstu vik­unum eftir áfallið að koma sínum málum í far­veg sem aðrar þjóð­ir, sem lentu í sam­kynja ham­förum, fundu ekki eða gátu ekki nýtt vegna þess að þær höfðu

afsalað sér loka­orð­inu. Og í fram­hald­inu skipti mestu að íslenskar hetjur í lög­reglu­lið­inu komu í veg fyrir að vel skipu­lögðum öflum með stuðn­ingi fjár­sterkra manna sem höfðu sumir verið helstu leik­endur í spil­inu sem felldi fjár­hags lands­ins, tæk­ist að laska lýð­veldið var­an­lega. Það er sér­stak­lega minn­is­stætt og sárt að „ör­ygg­is­tækið RÚV“ ýtti undir sund­ur­lyndi í land­inu og hamp­aði æsingaröfl­un­um. Sú stofnun hefur aldrei beðist afsök­unar á fyr­ir­lit­legri fram­göng­u.“

Davíð Odds­son, annar rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, var seðla­banka­stjóra á þeim fyrstu vikum sem vikið er að í leið­ar­an­um, og sagðar eru hafa bjargað land­inu fyrir horn. Hann missti það starf snemma árs 2009. 

Mál Har­aldar til skoð­unar í ráðu­neyt­inu

Mál rík­is­lög­reglu­stjóra er nú til með­ferðar í dóms­mála­ráðu­neyt­inu og hefur Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, ráð­herra mála­flokks­ins, gefið sér nokkrar vikur til að finna lausn á því. Ein lausn væri að ráð­ast í skipu­lags­breyt­ingar innan lög­regl­unnar og færa t.d. starf­semi rík­is­lög­reglu­stjóra undir lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u. Enn sem komið er mun Har­aldur hins vegar sitja áfram í starfi.

Í gær var svo greint frá því að Tryggvi Gunn­­ar­s­­son, Umboðs­­maður Alþing­is, hefði sent bréf til dóms­­mála­ráðu­­neyt­is­ins og spurt hvers vegna Har­aldur Johann­es­sen hafi ekki verið áminntur þegar hann sendi tveimur fjöl­miðla­­mönnum bréf, sem höfðu fjallað um starf­­semi rík­­is­lög­­reglu­­stjóra og per­­sónu Har­ald­­ar, en bréf hans var skrifað á bréfs­efni rík­­is­lög­­reglu­­stjóra. 

Dóms­­mála­ráðu­­neyti Þór­­dísar Kol­brúnar Reyk­­fjörð Gylfa­dóttur komst að þeirri nið­­ur­­stöðu í lok maí að fram­­ganga Har­aldar Johann­essen, rík­­is­lög­­reglu­­stjóra, hefði verið ámæl­is­verð þegar hann sendi tveimur fjöl­miðla­­mönnum bréf til að and­­mæla umfjöllun á sjón­­varps­­stöð­inni Hring­braut.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent