„Niðurstaða FATF er mikil vonbrigði.“
Þetta segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, í stöðuuppfærslu á Facebook síðu sinni um það að Ísland sé á gráum lista FATF (Financial Action Task Force) yfir þjóðir sem þurfa að bregðast meira við til að sporna gegn peningaþvætti.
„Við tökum stöðunni alvarlega og setjum í algjöran forgang að komast af listanum sem allra fyrst. Vinnan hefur verið gríðarlega mikil eftir að gerðar voru 51 athugasemd hér 2018 og það sem stendur eftir eru þrjú atriði að mati FATF sem taka það þó fram að þau séu öll í farvegi,“ segir Áslaug Arna.
Eins og greint var frá á vef Kjarnans í morgun - og ítarlega hefur verið fjallað um á vef Kjarnans allt frá árinu 2017 - þá hefur FATF gert athugasemdir við hvernig Ísland hefur haldið á málum, þegar kemur að því að sporna gegn peningaþvætti.
„Á fundi aðildarríkja FATF, sem fram fór í vikunni, mótmæltu íslensk stjórnvöld tillögu um að setja Ísland á gráan lista yfir ríki sem ekki hafa gripið til nægilegra varna gegn peningaþvætti, „þar sem þau telja að niðurstaðan endurspegli á engan hátt stöðu landsins í vörnum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Sú afstaða mætti skilningi meðal nokkurs fjölda aðildarríkja,“ segir í tilkynningu frá stjórnvöldum.
Þá er það mat ráðgjafa íslenskra stjórnvalda að áhrifin af því að Ísland sé á listanum séu óveruleg, að því er segir í tilkynningu frá stjórnvöldum.
Þættirnir þrír sem stjórnvöld vinna nú að úrbótum á, eru eftirfarandi.
1. Upplýsingar um raunverulega eigendur
„Stjórnvöld hafa nú þegar tímanlegan aðgang að áreiðanlegum upplýsingum um raunverulega eigendur með ýmsum hætti, t.d. í gegnum fyrirtækjaskrá og frá tilkynningarskyldum aðilum. Skrifstofa fjármálagreininga lögreglu hefur beinan aðgang að upplýsingum frá tilkynningarskyldum aðilum skv. 2. mgr. 20. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og eftirlitsaðilar (FME og RSK) hafa sambærilegan aðgang skv. 3. mgr. 38. gr. sömu laga. Þá getur lögregla fengið upplýsingar frá fjármálafyrirtækjum með dómsúrskurði sem getur verið afgreiddur samdægurs ef fullnægjandi forsendur eru til staðar. Þá hefur Alþingi enn fremur sett lög nr. 82/2019 um skráningu raunverulegra eigenda umfram kröfur sem leiða má af stöðlum FATF, sem tóku gildi í júní sl. Mun skráin skv. innleiðingaráætlun ríkisskattstjóra verða tilbúin um næstu áramót.“
2. Upplýsingakerfi og starfsmannafjöldi hjá skrifstofu fjármálagreininga lögreglu.
„Þegar hafa verið fest kaup á upplýsingakerfi og hófst innleiðing fyrr á þessu ári og gera áætlanir ráð fyrir að það verði að fullu komið í gagnið í apríl á næsta ári. Þá hefur starfsmönnum verið fjölgað.“
3. Eftirlit með eftirfylgni við þvingunaraðgerðir og yfirsýn yfir starfsemi almannaheillafélaga.
„Eftirlitsaðilar hafa þegar hafið athuganir á fylgni tilkynningaskyldra aðila við lög nr. 64/2019. Þá virðast niðurstöður FATF hvað þetta atriði varðar byggjast á röngum forsendum, þ.e. að skyldur vegna alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna hafi fyrst verið lögfestar á Íslandi með lögum nr. 64/2019. Þetta er ekki rétt þar sem slík skylda hefur verið til staðar frá gildistöku laga nr. 93/2008 og Fjármálaeftirlitið viðhaft eftirlit með lögunum frá 2017. Meginbreytingin með lögum nr. 64/2019 var að kveða á um skyldu til að hafa kerfi, ferla eða aðferðir til að greina hvort viðskiptamenn séu á lista yfir þvingunaraðgerðir. Þá samþykkti Alþingi frumvarp ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um skráningarskyldu félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri hinn 9. október til að bæta yfirsýn yfir starfsemi almannaheillafélaga, sér í lagi hvað varðar þau almannaheillafélög sem geta verið viðkvæm fyrir misnotkun í tengslum við fjármögnun hryðjuverka.“