Nýr kjarasamningur milli Blaðamannafélags Íslands og útgáfufélagsins Birtings var undirritaður nú í hádeginu með fyrirvara um samþykki samninganefndar BÍ og félagsmanna BÍ í Birtingi og stjórnar Birtings. Þetta kemur fram í frétt BÍ.
Útgáfufélagið Birtingur gefur út tímaritin Gestgjafann, Vikuna, Hús og Hýbýli og dagblaðið Mannlíf og er stór vinnustaður blaðamanna en samninagviðræður félagsins og Blaðamannafélagsins tóku viku, samkvæmt BÍ.
Kynning og atkvæðagreiðsla um samninginn fer fram í hádeginu á morgun, en frestur til að tilkynna um afgreiðslu kjarasamningsins er til klukkan 17:00 á morgun, þriðjudaginn 29. október. Nýi kjarasamningurinn verður birtur þegar hann hefur verið kynntur og afgreiddur af þeim blaðamönnum sem hann tekur til.
Í frétt BÍ kemur enn fremur fram að samningurinn gildi í þrjú ár til 1. nóvember 2022 og feli meðal annars í sér gildistöku nýrrar launatöflu, grunnkaupshækkanir, hækkun á endurgreiddum kostnaði, endurskoðun á vaktaálagi og gildistöku á samningi um framsal á höfundarrétti, auk fleiri smærri atriða. Samningurinn sé vel innan þeirrar launastefnu sem mótuð hefur verið á árinu á almennum vinnumarkaði.
Viðræður standa yfir við aðra smærri miðla
Þá segir að viðræður standi yfir við aðra smærri miðla og standa vonir til að þær skili niðurstöðu fljótlega.
„Samningafundur hefur verið boðaður hjá ríkissáttasemjara á morgun klukkan 10:30 með Blaðamannafélaginu og þeim miðlum sem kosið hafa að standa innan Samtaka atvinnulífsins og hafa afhent þeim samningsumboð. Ekkert hefur hreyfst í samningamálum þessara aðila þrátt fyrir sjö mánaða samningaviðræður og skjalfest er hjá ríkissáttasemjara með tilboði SA fyrir hönd Morgunblaðsins, Fréttablaðsins, RÚV og Sýnar að blaðamönnum eru boðnar minni kjarabætur en samist hefur um við aðra á árinu. Atkvæðagreiðsla um vinnustöðvanir blaðamanna á þessum miðlum fer fram á miðvikudaginn kemur, 30. október,“ segir í fréttinni.
Hjálmar Jónsson, formaður BÍ, segist vera gríðarlega ánægður með að nást hafi samningar við Birting og bindur hann vonir við að samningar náist á næstu dögum við aðra smærri miðla. „Það skiptir höfuðmáli í þeirri erfiðu stöðu sem fjölmiðlar eru í, að taka höndum saman, sækja fram, og nýta þau tækifæri sem fyrir hendi eru. Til þess þarf að sýna frumkvæði og hugrekki og verja lágmarkskjör. Það hefur tekist með þessum samningi að mínu mati og á Birtingur heiður skilinn að eiga þar hlut að máli.“