Magnús Geir skipaður þjóðleikhússtjóri

Magnús Geir Þórðarson hættir sem útvarpsstjóri eftir að hann var skipaður nýr þjóðleikhússtjóri af mennta- og menningarmálaráðherra í dag.

Magnús Geir RÚV
Auglýsing

Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur ákveðið að skipa Magnús Geir Þórð­ar­son í starf þjóð­leik­hús­stjóra. Skip­anin gildir í fimm ár, frá og með 1. jan­úar 2020.

Alls bár­ust sjö umsóknir um stöð­una og voru fjórir umsækj­end­anna metnir hæf­astir af nefnd sem ráð­herra hafði skip­að. Þeir fjórir voru boð­aðir í við­tal þar sem áhersla var  lögð á stjórn­un­ar- og leið­toga­hæfi­leika til við­bótar og stuðn­ings við það mat sem þegar hafði farið fram. Eftir það var Magnús Geir val­inn.

Í frétta­til­kynn­ingu segir að Magnús Geir hafi stundað leik­stjórn­ar­nám við Bristol Old Vic Thea­ter School (1994) og lauk M.A. gráðu í leik­hús­fræðum frá Uni­versity of Wales (2003). ­Magnús Geir hefur jafn­framt lokið MBA-gráðu frá Háskól­anum í Reykja­vík (2005). Hann hefur langa og víð­tæka stjórn­un­ar­reynslu og ára­tuga reynslu af leik­hús­störf­um, var ­leik­hús­stjóri Borg­ar­leik­húss­ins og Leik­fé­lags Akur­eyrar á árum áður.

Auglýsing

Frá því í mars 2014 hefur hann hins vegar verið útvarps­stjóri RÚV. Fimm ára ráðn­ing­ar­tíma­bili hans í það starf lauk fyrr á þessu ári en Kári Jón­as­son, stjórn­ar­for­maður RÚV, sagði í jan­úar 2019 við Kjarn­ann að engin áform væru um að aug­lýsa starf­ið, heldur stæði til að end­ur­nýja ráðn­ingu Magn­úsar Geirs til ann­arra fimm ára. Á þeim tíma var gengið út frá því að Magnús Geir sæti í Efsta­leiti til árs­ins 2024. 

Í júní í sumar var hins vegar greint frá því að Magnús Geir hefði sótt um stöðu þjóð­leik­hús­stjóra. Í tölvu­­pósti til sam­­starfs­­fólks hans á RÚV ­af því til­efni skrif­aði Magnús Geir að þrátt fyrir að vera ánægður í starfi og að allt gengi vel á RÚV þá ætti leik­­húsið samt alltaf rosa­­lega stóran sess í hjarta hans. „Eins og þið vitið sjálf­­sagt, þá hafði ég verið í leik­hús­inu allt mitt líf, þegar mér bauðst að taka við stjórn RÚV fyrir rúmum fimm árum. Ég er ótrú­­lega stoltur af þeim árangri sem við höfum náð í sam­ein­ingu á síð­­­ustu mis­s­erum og ég er mjög ánægður í starfi mínu hér,“ sagði Magnús Geir.

Staða útvarps­stjóra verður því laus til umsóknar í nán­ustu fram­tíð. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent