Íslenski bankamaðurinn Guðni Stilholt Aðalsteinsson hefur sest í framkvæmdastjórn Doha Bank, eins stærsta banka Katar. Þar gegnir hann framkvæmdastjórastöðu sem kallast „chief treasury and investment officer“. Þetta má sjá á heimasíðu Doha Bank.
Guðni hét áður Guðni Níels Aðalsteinsson og var meðal annars framkvæmdastjóri fjárstýringar hjá Kaupþingi áður en sá banki féll í október 2008. Eftir það starfaði hann stuttlega hjá breska fjármálaeftirlitinu.
Hann hefur einnig gegnt stjórnendastörfum hjá Allied Irish Banks og Lehman Brothers og starfaði um nokkurra ára skeið hjá breska fjármálafyrirtækinu Legal & General. Í fyrrasumar greindi Fréttablaðið frá því að Guðni hefði ráðið sig til íslenska fjármálatæknifyrirtækisins Alva sem rekur Netgíró, Aktiva og Inkasso sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Það virðist þó hafa verið stutt stopp og hann hefur nú sest í framkvæmdastjórn Doha Bank í Katar.
Kaupþing, bankinn sem Guðni starfaði hjá fyrir bankahrun, hafði mikinn áhuga á að setja á fót starfsemi í Miðausturlöndum á sínum tíma. Áform hans snerust meðal annars um að opna útibú í Doha og Dúbaí.
Það skilaði því meðal annars að Mohamed bin Khalifa Al Thani, sem tilheyrir konungsfjölskyldunni í Katar, keypti á 5,01 prósent hlut í Kaupþingi fyrir 25,6 milljarða króna þann 22. september 2008, skömmu fyrir bankahrun, án þess að hann þyrfti að leggja út eina einustu krónu. Kaupþing lánaði að fullu fyrir kaupunum. Við það varð Al Thani þriðji stærsti hluthafi bankans, sem lifði aðeins í tæpar þrjár vikur eftir að viðskiptin voru um garð gengin. Sá Al Thani er ekki á meðal þeirra sem sitja í stjórn Doha Bank í dag.
Fjórir fyrrverandi stjórnendur Kaupþings, Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson og Magnús Guðmundsson, og einn stærsti hluthafi bankans, Ólafur Ólafsson, voru dæmdir til þungra fangelsisdóma vegna málsins í febrúar 2015. Þeim var gefið að hafa framið umboðssvik og stundað markaðsmisnotkun eða átt hlutdeild í slíkum brotum.