Fyrrverandi Kaupþingsmaður til Doha Bank í Katar

Guðni Stilholt Aðalsteinsson hefur tekið við framkvæmdastjórastöðu hjá banka í Miðausturlöndum.

gudniniels.jpg
Auglýsing

Íslenski banka­mað­ur­inn Guðni Stil­holt Aðal­steins­son hefur sest í fram­kvæmda­stjórn Doha Bank, eins stærsta banka Kat­ar. Þar gegnir hann fram­kvæmda­stjóra­stöðu sem kall­ast „chief trea­sury and invest­ment officer“. Þetta má sjá á heima­síðu Doha ­Bank

Guðni hét áður Guðni Níels Aðal­steins­son og var meðal ann­ars fram­kvæmda­stjóri fjár­stýr­ingar hjá Kaup­þingi áður en sá banki féll í októ­ber 2008. Eftir það starf­aði hann stutt­lega hjá breska fjár­mála­eft­ir­lit­in­u. 

Hann hefur einnig gegnt stjórn­enda­störfum hjá Allied Irish Banks og Lehman Brothers og starf­aði um nokk­urra ára skeið hjá breska fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Legal & Gener­al. Í fyrra­sumar greindi Frétta­blaðið frá því að Guðni hefði ráðið sig til íslenska fjár­mála­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Alva sem rek­ur Net­gíró, Aktiva og Inkasso sem fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs. Það virð­ist þó hafa verið stutt stopp og hann hefur nú sest í fram­kvæmda­stjórn Doha Bank í Kat­ar.

Auglýsing
Í stjórn Doha Bank sitja níu menn, sem sam­kvæmt heima­síðu bank­ans eru allir leið­togar í sínum atvinnu­vegum í Kat­ar. Stjórn­ar­for­maður bank­ans er Sjeik Fahad Bin Mohammad Bin Jabor Al Thani. Auk hans bera þrír aðrir stjórn­ar­menn eft­ir­nafnið Al Thani.

Kaup­þing, bank­inn sem Guðni starf­aði hjá fyrir banka­hrun, hafði mik­inn áhuga á að setja á fót starf­semi í Mið­aust­ur­löndum á sínum tíma. Áform hans sner­ust meðal ann­ars um að opna útibú í Doha og Dúbaí. 

Það skil­aði því meðal ann­ars að  Mo­hamed bin Khalifa Al Thani, sem til­heyrir kon­ungs­fjöl­skyld­unni í Katar, keypti á 5,01 pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir 25,6 millj­arða króna þann 22. sept­em­ber 2008, skömmu fyrir banka­hrun, án þess að hann þyrfti að leggja út eina ein­ustu krónu. Kaup­þing lán­aði að fullu fyrir kaup­un­um. Við það varð Al Thani þriðji stærsti hlut­hafi bank­ans, sem lifði aðeins í tæpar þrjár vikur eftir að við­skiptin voru um garð geng­in. Sá Al Thani er ekki á meðal þeirra sem sitja í stjórn Doha Bank í dag.

Fjórir fyrr­ver­andi stjórn­endur Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, Sig­urður Ein­ars­son og Magnús Guð­munds­son, og einn stærsti hlut­hafi bank­ans, Ólafur Ólafs­son, voru dæmdir til þungra fang­els­is­dóma vegna máls­ins í febr­úar 2015. Þeim var gefið að hafa framið umboðs­svik og stundað mark­aðs­mis­notkun eða átt hlut­deild í slíkum brot­u­m.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent