Mosfellsbær heldur áfram að stækka

Íbúum Mosfellsbæjar hefur fjölgað gríðarlega á síðasta áratug sem og nýjum íbúðum. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar býst við áframhaldandi fjölgun íbúa á næsta ári.

Mosfellsbær
Auglýsing

Mos­fells­bær er sjö­unda ­fjöl­mennasta sveit­ar­fé­lag lands­ins með tæp­lega 12.000 íbúa. Á síð­asta ára­tug hefur þar orðið mesta íbúa­fjölgun allra sveit­ar­fé­laga lands­ins að und­an­skildu Álfta­nesi. Sam­hliða mik­illi fjölgun Mos­fell­inga hefur íbúðum í sveit­ar­fé­lag­inu fjölgað mest af öllum sveit­ar­fé­lögum lands­ins á síð­ustu tíu árum. 

Reikna með að íbúum fjölgi um 5,9 pró­sent á næsta ári

Mos­fell­ingum hefur fjölgað um 3.600 manns frá árinu 2009 eða alls um 39 pró­sent. Þá hefur sveit­ar­fé­lagið vaxið sér­stak­lega hratt á síð­ustu tveimur árum og frá 1. des­em­ber í fyrra hefur íbúum Mos­fells­bæjar fjölgað um 5 pró­sent, sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár. Til sam­an­burðar fjölg­aði íbúum Reykja­víkur um 1,7 pró­sent. 

Í for­sendum fjár­hags­á­ætl­unar sveit­ar­fé­lags­ins fyrir næsta ár kemur fram að bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæjar miðar við að íbúum sveit­ar­fé­lags­ins fjölgi um 5,9 pró­sent á næsta ári. 

Auglýsing

„Það er okkur Mos­fell­ingum sem fyrr fagn­að­ar­efni að rekstur og starf­semi Mos­fells­bæjar er í miklum blóma og kraftur ein­kennir sam­fé­lagið okkar sem er í örum vexti. Íbúar eru nú um 12.000 og heldur áfram að fjölga á næsta ári. Við þurfum í sam­ein­ingu að treysta og við­halda þeim ein­kennum sem við vitum að eru einn af lyklum vel­gengni okkar sem sveit í borg þannig að vöxtur sveit­ar­fé­lags­ins hafi jákvæð áhrif á bæj­ar­brag­inn, þjón­ustu og þjón­ustu­stig,“ segir Har­aldur Sverr­is­son, bæj­ar­stjóri Mos­fells­bæj­ar.

Íbúða­upp­bygg­ing mest í Mos­fellsbæ

Sveit­ar­fé­lagið er land­mikið og spannar um 220 fer­kíló­metra. Bæj­ar­fé­lag­ið ­sam­anstendur af þétt­býl­iskjarna við Leir­vog auk víð­áttu­mik­illar sveit­ar, svo sem í Mos­fells­dal. 

Mynd: ÍbúðalánasjóðurSam­hliða gríð­ar­legri fjölgun íbúa hefur íbúða­upp­bygg­ing í sveit­ar­fé­lag­inu einnig verið hröð. Raunar hefur íbúða­upp­bygg­ing verið mest í Mos­fellsbæ af öllum sveit­ar­fé­lögum lands­ins síð­asta ára­tug, en ­skráðum íbúðum hefur fjölgað þar um 36 pró­sent frá árinu 2009. 

Alls hafa 1.191 íbúðir risið í Mos­fellsbæ á síð­ustu tíu árum, sam­kvæmt skýrslu Íbúða­lána­sjóðs. Þá eru alls 459 íbúðir í bygg­ingu í sveit­ar­fé­lag­in­u, ­sam­kvæmt nýjustu taln­ingu Sam­taka iðn­að­ar­ins í sept­em­ber síð­ast­liðn­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent