Nýtt íslenskt lágfargjaldaflugfélag heitir Play

Nýtt íslenskt lágfargjaldaflugfélag hefur verið opinberað. Það var mótað undir vinnuheitinu WAB Air en mun heita Play.

play3.jpg
Auglýsing

Arnar Már Magn­ús­son verður nýr for­stjóri flug­fé­lags­ins Play, sem opin­berað var í dag. Auk Arn­ars Más verða þeir Sveinn Ingi Stein­þórs­son, sem verður fjár­mála­stjóri, Bogi Guð­munds­son, sem mun halda utan um lög­fræðisvið­ið, og Þóróddur Ari Þór­odds­son, sem verður meið­eig­andi.

Unnið hefur verið að stofnun félags­ins í nokkra mán­uði undir heit­inu WAB Air, en það stóð fyrir „We Are Back“. Lyk­il­fólk í hópnum á bak­við stofnun félags­ins eru fyrr­ver­andi stjórn­endur hjá WOW air. Til að byrja með ætlar Play að gefa eitt þús­und frí flug­miða til þeirra sem skrá sig á heima­síðu félags­ins nú, en vefslóð hennar verður www.flypla­y.com.

Auglýsing
Inni á heima­síð­unni verður einnig hægt að sækja um störf hjá félag­inu, og Arnar Már sagði að félagið þurfi að ráða inn „ógrynni“ af fólki á næst­unni. „Við erum íslenskt flug­fé­lag með höf­uð­stöðvar á Íslandi og verðum með íslenska samn­inga við starfs­fólk. Það eru allir vel­komnir til okk­ar, Íslend­ingar og aðr­ir.“ 

Arnar Már vildi ekki svara því hvenær fyrsta flug Play yrði, en að það myndi verða gefið út þegar sala miða myndi hefj­ast í nán­ustu fram­tíð.

Play ætlar að tengja Norður Amer­íku við Íslands og Evr­ópu, en Arnar Már fór ekki yfir nákvæm­lega hverjir áfanga­staðir félags­ins yrðu né í hvaða skrefum þeir myndu koma inn. Í vor er stefnt að því að fjölga vélum félags­ins í sex og hefja þá flug til Norður Amer­íku.Arnar Már Magnússon verður nýr forstjóri flugfélagsins Play. Mynd: Bára Huld Beck

Félagið er fjár­magnað til lengri tíma í sam­vinnu við breskan fag­fjár­festa­sjóð og fjár­mála­fyr­ir­tækið Íslensk verð­bréf. Skipt­ingin verður þannig að 80 pró­sent af fjár­magn­inu mun koma erlendis frá en fimmt­ungur frá Íslandi.

Á kynn­ingu sem nú stendur yfir í Perlunni sagði Arnar Már að vinna við að fá flug­rekstr­ar­leyfi væri á loka­metr­un­um. Sömu­leiðis væri vinna við að fá inn flug­vélar í verk­efni félags­ins langt kom­in. Þá er bók­un­ar­vél Play til­búin og heima­síðan félags­ins fer í loftið von brað­ar. Sala er ekki haf­in, þar sem flug­rekstr­ar­leyfið er ekki kom­ið, en til stendur að sala hefj­ist í nóv­em­ber.

Play ætlar að standa fyrir öryggi, sér­stak­lega rekstr­ar­ör­yggi, og stund­vísi. Þá sagði Arnar Már að flug­fé­lagið vilji vera ein­falt. Í því felst meðal ann­ars að vera með ein­faldan flotastrúkt­úr, þ.e. að fljúga einni gerð véla, Air­bus A320. Sú vél er með þeim spar­neytn­ari sem finn­ast og á að henta vel leið­ar­kerfi hins nýja félags.

Play verður lág­far­gjalda­flug­fé­lag sem mun bjóða upp á hag­stæð verð.„­Nafnið Play lýsir þessu félagi mjög vel. Við förum til útlanda til þess að leika okk­ur,“ sagði Arnar Már á frétta­manna­fund­in­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent