Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, hefur óskað eftir fundi með Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra til að ræða stöðu hælisleitenda í ljósi þess að barnshafandi konu var vísað úr landi í nótt með tveggja ára barni sínu.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Biskupi Íslands.
Eins og fram hefur komið í dag, var konan, albanskur hælisleitandi, gengin 36 vikur. Biskup segir að það sé „ólíðandi verknaður að senda barnshafandi konu burt í óvissu og örbyrgð.“
Það sé mannréttindabrot og gangi þvert á skilyrðislausa kærleiksskyldu kristinna manna.
Biskup hefur jafnframt óskað eftir því að prestur innflytjenda, Thoshiki Toma og Ása Laufey Sæmundsdóttir og Eva Björk Valdimarsdóttir, sem séð hafa um þjónustu við hælisleitendur, fylgi málinu eftir.