Drífa Snædal, forseti ASÍ, gerir kjaramál hjá nýju lággjaldaflugfélagi, Play, að umræðuefni í föstudagspistli sínum í dag.
„Það er fátt sem landinn kann betur að meta en ódýr flugfargjöld til útlanda. En ef fargjaldið er of lágt eru það aðrir sem greiða flugmiðann,“ skrifar hún.
Vísar hún í fréttir gærdagsins en greint var frá því að launakostnaður Play yrði 27 til 37 prósent minni en var hjá WOW air. „Aðaleigandi og forstjóri þess flugfélags sem fór svo eftirminnilega á hausinn í mars síðastliðnum og kostaði 2000 manns vinnuna sagði launakostnaðinn hafa farið með félagið á hausinn.“
Ekki fulltrúar stéttarinnar sem semja um kaup og kjör
Drífa segir að ekkert sé fjær lagi eins og alþjóð viti – hann hafi verið alveg einfær um að koma því á hausinn, og er hún þarna að tala um Skúla Mogensen. Full ástæða sé til að velta því fyrir sér hvernig hægt verði að greiða enn lægra verð fyrir vinnuframlag en gert hafi verið hjá WOW og nú sé gert hjá Icelandair. Ýmsar vísbendingar hafi komið fram í kynningarefni fyrir fjárfesta þar sem á að vera „betri nýting“ á áhöfnum, sem sagt meiri vinna fyrir sömu laun. Vísað sé í kjör sem flugliðum býðst á Írlandi en það hafi hingað til verið bækistöð flugfélaga sem haldi kostnaði niðri með lágum launum og mikilli vinnu.
„Það sem vekur verulegar áhyggjur er að stéttarfélag hefur samið um kaup fyrir flugliða áður en nokkur flugliði hefur verið ráðinn og erfitt að sjá hvort einhver flugliði hafi komið að eigin samningi. Það eru því sannanlega ekki fulltrúar stéttarinnar sem semja um kaup og kjör heldur standa frammi fyrir orðnum hlut. Þetta brýtur í bága við allar grunnstoðir stéttarfélaga og rétt þeirra til þess að tryggja hagsmuni félagsmanna sinna með kjarasamningum,“ skrifar Drífa.
Hún segir að grunnhugsunin sé að vinnandi fólk komi sér saman í stéttarfélag, kjósi sér fulltrúa sem setjist svo við samningaborðið. Stéttarfélögin bindist svo heildarsamtökum til að búa til enn meiri slagkraft og njóta samstöðunnar þegar í harðbakkann slær.
Verða að virði leikreglur hins íslenska vinnumarkaðar
„Það er væntanlega óþarfi að rifja upp hversu miklu máli þetta skipti þegar WOW fór á hausinn og ASÍ gat hlaupið undir bagga með Flugfreyjufélaginu sem greiddi félagsmönnum fyrirfram upp í kröfur þeirra á ábyrgðasjóð launa til að tryggja að fólk hefði til hnífs og skeiðar þegar launagreiðslur brugðust.
Það er skýr krafa til nýrra fyrirtækja á markaði að þau virði leikreglur hins íslenska vinnumarkaðar. Undirboð í kjörum kemur öllum við og bitnar á endanum á samfélaginu öllu, bæði launafólki og þeim fyrirtækjum sem virða leikreglur,“ segir Drífa að lokum.