Fréttaskrif á mbl.is með vitund og vilja ritstjóra Morgunblaðsins

Nokkrir blaðamenn á Morgunblaðinu, sem að öllu jöfnu skrifa ekki fréttir á mbl.is, tóku sig til við að skrifa fréttir á mbl.is þegar verkfall BÍ stóð yfir í dag. Að auki voru fyrrverandi sumarstarfsmaður og lausapenni á Morgunblaðinu kallaðir til.

Skjáskot af síðu mbl.is 8. nóvember 2019
Auglýsing

Blaða­menn og frétta­stjórar á frétta- og íþrótta­deild mbl.is hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna meintra verk­falls­brota á miðl­inum í dag en hún birt­ist á vef Blaða­manna­fé­lags Íslands. Þeir lýsa yfir von­brigðum með það fram­ferði og þau við­horf til lög­lega boð­aðra aðgerða sem birt­ust á miðl­inum í dag. 

Í yfir­lýs­ing­unni kemur fram að klukkan 10 í morgun hafi blaða­menn á frétta­deild og íþrótta­deild mbl.is lagt niður störf, rétt eins og blaða­menn í Blaða­manna­fé­lagi Íslands á net­miðlum RÚV, Torgs og Sýnar gerðu, í sam­ræmi við tíma­bundna vinnu­stöðvun blaða­manna á net­miðlum sem sam­þykkt var í atkvæða­greiðslu félags­manna Blaða­manna­fé­lags Íslands 30. októ­ber síð­ast­lið­inn til árétt­ingar kröfum félags­manna í Blaða­manna­fé­lag­inu í kjara­deilu félags­ins við Sam­tök atvinnu­lífs­ins.

„Um leið og blaða­menn á mbl.is lögðu niður störf í morgun tóku nokkrir blaða­menn á Morg­un­blað­inu, sem að öllu jöfnu skrifa ekki fréttir á mbl.is, til við að skrifa fréttir á mbl.­is. Að auki voru fyrr­ver­andi sum­ar­starfs­maður og lausa­penni á Morg­un­blað­inu kall­aðir til til þess að skrifa fréttir á mbl.is á meðan þeir blaða­menn mið­ils­ins, sem voru á vakt á þessum til­tekna tíma, lögðu niður störf í sam­ræmi við lög­lega boð­aðar aðgerðir sem stóðu til klukkan 14,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Auglýsing

Fram kemur hjá blaða­mönn­unum og frétta­stjór­unum að þessi umræddu frétta­skrif hafi verið með vit­und og vilja rit­stjóra og fram­kvæmda­stjóra Morg­un­blaðs­ins.

Skrifin í dag ekki á þeirra ábyrgð

„Við und­ir­rituð blaða­menn og frétta­stjórar á frétta- og íþrótta­deild mbl.is lýsum yfir von­brigðum með þetta fram­ferði og þau við­horf til lög­lega boð­aðra aðgerða sem þarna birt­ast. Við teljum að þetta fram­ferði sé til þess fallið að varpa rýrð á mbl.is, ekki síst þá blaða­menn sem þar starfa og leit­ast eftir fremsta megni við að sinna starfi sínu af heil­indum og fag­mennsku. Að okkar mati er þetta síst til þess fallið að finna væn­lega lausn á kjara­deil­unni sem nú stendur yfir.

Með því að senda þessa yfir­lýs­ingu viljum við að það komi skýrt fram að þær fréttir og umfjall­an­ir, sem skrif­aðar voru og birtar á mbl.is á meðan á lög­lega boð­uðum aðgerðum félaga í Blaða­manna­fé­lagi Ísl­ans stóð, eru ekki á okkar ábyrgð,“ segir að lokum í yfir­lýs­ing­unni en undir hana skrifa 17 blaða­menn og frétta­stjór­ar.

Yfirlýsingin í heild sinni

Klukkan 10 í morgun lögðu blaða­menn á frétta­deild og íþrótta­deild mbl.is niður störf, rétt eins og blaða­menn í Blaða­manna­fé­lagi Íslands á net­miðlum RÚV, Torgs og Sýnar gerðu, í sam­ræmi við tíma­bundna vinnu­stöðvun blaða­manna á net­miðlum sem sam­þykkt var í atkvæða­greiðslu félags­manna Blaða­manna­fé­lags Íslands 30. októ­ber síð­ast­lið­inn til árétt­ingar kröfum félags­manna  í Blaða­manna­fé­lag­inu í kjara­deilu félags­ins við Sam­tök atvinnu­lífs­ins.



Um leið og blaða­menn á mbl.is lögðu niður störf í morgun tóku nokkrir blaða­menn á Morg­un­blað­inu, sem að öllu jöfnu skrifa ekki fréttir á mbl.is, til við að skrifa fréttir á mbl.­is. Að auki voru fyrr­ver­andi sum­ar­starfs­maður og lausa­penni á Morg­un­blað­inu kall­aðir til til þess að skrifa fréttir á mbl.is á meðan þeir blaða­menn mið­ils­ins, sem voru á vakt á þessum til­tekna tíma, lögðu niður störf í sam­ræmi við lög­lega boð­aðar aðgerðir sem stóðu til klukkan 14.



Þessi umræddu frétta­skrif voru með vit­und og vilja rit­stjóra og fram­kvæmda­stjóra Morg­un­blaðs­ins.



Við und­ir­rituð blaða­menn og frétta­stjórar á frétta- og íþrótta­deild mbl.is lýsum yfir von­brigðum með þetta fram­ferði og þau við­horf til lög­lega boð­aðra aðgerða sem þarna birt­ast. Við teljum að þetta fram­ferði sé til þess fallið að varpa rýrð á mbl.is, ekki síst þá blaða­menn sem þar starfa og leit­ast eftir fremsta megni við að sinna starfi sínu af heil­indum og fag­mennsku. Að okkar mati er þetta síst til þess fallið að finna væn­lega lausn á kjara­deil­unni sem nú stendur yfir.



Með því að senda þessa yfir­lýs­ingu viljum við að það komi skýrt fram að þær fréttir og umfjall­an­ir, sem skrif­aðar voru og birtar á mbl.is á meðan á lög­lega boð­uðum aðgerðum félaga í Blaða­manna­fé­lagi Ísl­ans stóð, eru ekki á okkar ábyrgð.



Anna Sig­ríður Ein­ars­dótt­ir, Anna Lilja Þór­is­dótt­ir, Arnar Þór Ing­ólfs­son, Erla María Mark­ús­dótt­ir, Freyr Bjarna­son, Guð­mundur Hilm­ars­son, Guð­rún Hálf­dán­ar­dótt­ir, Hallur Már Halls­son, Ívar Bene­dikts­son, Jóhann Ólafs­son, Jón Pétur Jóns­son, Krist­ján Jóns­son, Sindri Sverr­is­son,  Sól­rún Lilja Ragn­ars­dótt­ir, Víðir Sig­urðs­son, Þor­gerður Anna Gunn­ars­dótt­ir, Þor­steinn Ásgríms­son Melén og Þór­unn Krist­jáns­dótt­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent