Gunnar Bragi minnir á að stjórnendur Samherja eigi börn

Varaformaður Miðflokksins segist hugsa til starfsmanna Samherja þessa dagana þegar stríðsfyrirsagnir um fyrirtækið séu í fjölmiðlum. Hann gagnrýnir fjölmiðla og segir það galið að ætla að styrkja þá með ríkisfé.

Gunnar Bragi Sveinsson
Auglýsing

Gunnar Bragi Sveins­son, vara­for­maður Mið­flokks­ins, seg­ist hugsa til starfs­manna Sam­herj­a ­sem horfi nú á stríðs­fyr­ir­sagnir um fyr­ir­tækið og stjórn­endur þess. „Það er slæmt fyrir okkur öll þegar eitt af öfl­ug­ustu fyr­ir­tækjum lands­ins er sakað um vafa­sama við­skipta­hætti. Eðli­legt er að þeir sem ábyrgð bera svari fyrir það. Þeir og aðrir sem að fyr­ir­tæk­inu standa eða starfa hjá því eiga fjöl­skyld­ur, börn sem skilja ekki orðin sem notuð eru eða hvers vegna fjöl­skyldu­fað­ir­inn eða móð­irin bland­ast inn í þá umræðu sem búin var til með æsifrétta­stíln­um. Æsingur fjöl­mið­ils­ins til að ná athygl­inni er stundum svo mik­ill að annað skiptir ekki máli. Athygl­iskeppnin er eins og aur­skriða sem engu eirir og síst sann­leik­anum sem kannski kemur í ljós seint og um síð­ir.“

Þetta kemur fram í grein sem hann skrifar í Morg­un­blaðið í dag. 

Gagn­rýnir sam­band Rík­is­út­varps­ins við Stund­ina

Þar gagn­rýnir Gunnar Bragi enn fremur það sem hann kallar sér­stakt sam­band milli Rík­is­út­varps­ins og Stund­ar­inn­ar, sem birtu bæði umfjall­anir um ætl­aðar mútu­greiðsl­ur, skatt­svik og pen­inga­þvætti Sam­herja í tengslum við við­skipta­hætti fyr­ir­tæk­is­ins í Namib­íu. 

Hann segir Rík­is­út­varpið og Stundin hafa áður sængað saman „og þá mat­reitt málin eftir eigin höfði til þess eins að gera hlut­ina enn verri. Því er mik­il­vægt að bíða eftir heild­ar­mynd­inni áður en opin­berar aftökur hefj­ast.“ Gunnar Bragi til­greinir ekki hvaða umfjöllun hann er að vísa þar í. 

Auglýsing
Hann gerir svo fjöl­miðla yfir höfuð að umtals­efni í grein­inni og segir að æsingur þeirra til að ná athygl­inni sé stundum svo mik­ill að annað skipti ekki máli. „At­hygl­iskeppnin er eins og aur­skriða sem engu eirir og síst sann­leik­anum sem kannski kemur í ljós seint og um síð­ir. Á þá ekki að upp­lýsa um það sem miður fer eða þegar líkur eru á ein­hverju broti? Jú, svo sann­ar­lega en hvernig það er gert skiptir máli.“ Gunnar Bragi til­tekur engin dæmu um þetta í grein­inn­i. 

Segir styrki til fjöl­miðla galna hug­mynd

Að lokum opin­berar Gunnar Bragi það að Mið­flokk­ur­inn hafi lagt fram til­lögu um að hætt yrði við að styrkja einka­rekna fjöl­miðla um allt að 400 millj­ónir króna í heild við fjár­laga­vinn­una, en frum­varp um slíka styrki hefur verið dreift á Alþingi og til stendur að mæla fyrir því á næst­unn­i. 

Gunnar Bragi segir styrk­ina vera galna hug­mynd þegar ríkið sé þegar að setja um fimm millj­arða króna í Rík­is­út­varp­ið. „Það að reyna að koma öllum fjöl­miðlum á rík­is­spen­ann minnir óþægi­lega á sam­fé­lög þar sem stjórn­völd reyna að stýra öllum fjöl­miðl­um. Fjöl­miðlar verða að geta starfað án rík­is­styrkja. Mið­flokk­ur­inn mun á næst­unni kynna hug­mynd að því hvernig efla megi einka­rekna fjöl­miðla án þess að binda þá á rík­is­jöt­una.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent