Jón Sigurðsson kominn í stjórn Símans – Verður stjórnarformaður

Sitjandi stjórnarformaður Símans, Betrand Kan, var felldur í stjórnarkjöri í dag. Stoðir, stærsti hluthafi Símans, eru komin með mann inn í stjórn.

Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Stoða.
Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Stoða.
Auglýsing

Stjórn­ar­for­maður Sím­ans, hol­lenski fjár­festir­inn Bertrand Kan sem setið hefur í stjórn félags­ins frá vor­inu 2016, var felldur í stjórn­ar­kjöri sem fram fór í dag. 

Alls voru sex í fram­boði til stjórnar og var hann sá eini þeirra sem náði ekki kjöri. Þau fimm sem kjörin voru í stjórn eru Jón Sig­urðs­son, stjórn­ar­for­maður Stoða sem er stærsti ein­staki eig­andi Sím­ans, Kol­beinn Árna­son, lög­maður og eig­andi Dranga lög­manna, Sylvía Kristín Ólafs­dótt­ir, for­­stöðu­maður rekstr­­ar­sviðs Icelanda­ir, Bjarni Þor­varð­ar­son, for­stjóri lyfja­fram­­leið­and­ans Corip­harma í Hafn­ar­f­irð­i. 

Jón hefur verið kjör­inn for­maður stjórnar og Helga verður vara­for­maður henn­ar.

Auglýsing
Það var að kröfu Stoða, sem hafa keypt sig hratt upp í Sím­anum und­an­farin miss­eri, sem hlut­hafa­fundur var boð­aður til að kjósa nýja stjórn. Taldi félagið að vegna veru­legra breyt­inga sem orðið hafa á eign­ar­haldi Sím­ans væri rétt að umboð stjórnar yrði end­ur­nýjað og kosin verði ný stjórn.

Hagn­aður Sím­ans á þriðja árs­fjórð­ungi var rúm­­lega 897 millj­­ónir króna og dróst saman úr 978 millj­­ónum króna í fyrra. Rekstr­­ar­hagn­aður félags­­ins var 2,8 millj­­arðar króna og hækk­­aði um 210 millj­­ónir króna frá sama tíma­bili 2017. 

Eig­in­fjár­­hlut­­fall Sím­ans í lok þess árs­fjórð­ungs, sem lauk í lok sept­­em­ber, var 55,4 pró­­sent og eigið fé fjar­­skipt­­ar­is­ans var 36,3 millj­­arðar króna.

Góður tekju­vöxtur var í sjón­­varps­­rekstri milli ára, eða um 20 pró­­sent. Á þriðja árs­fjórð­ungi í fyrra voru tekjur Sím­ans af sjón­vars­rekstri 1.190 millj­­ónir króna er voru nú 1.423 millj­­ónir króna.  Þessi tekju­aukn­ing dró vagn­inn fyrir Sím­ann á síð­asta árs­fjórð­ung­i. 

Orðið umsvifa­mikið á skömmum tíma

Stoðir er á skömmum tíma orð­inn umsvifa­mesti einka­fjár­festir­inn hér­lend­is. Félagið hét áður FL Group og var meðal ann­ars stærsti eig­andi Glitnis banka fyrir hrun. 

Félagið fór í greiðslu­­stöðvun þegar sá banki fór á haus­inn og kröf­u­hafar þess tóku það yfir. Vorið 2017 keyptu svo félög, í eigu stórra hlut­hafa í TM sem voru margir hverjir lyk­il­­­menn í FL Group á árunum fyrir hrun, ráð­andi hlut í Stoð­u­m.

Auglýsing
Þá áttu Stoðir ein­ungis eina eign af viti sem átti eftir að vinna úr, hlut í hol­­lenska drykkj­­­ar­vöru­fram­­­leið­and­­­anum Refresco. Sá hlutur var seldur í mars 2018 eftir yfir­­­tökutil­­boð og eftir sátu um 18 millj­­arðar króna í Stoð­­um. Þeir fjár­­munir hafa verið not­aðir í fjár­­­fest­ingar á und­an­­förnum mis­s­er­­um.

Mikið eigið fé til að fjár­festa með

Eigið fé Stoða var 23,2 millj­­arðar króna í lok júní síð­­ast­lið­ins. Hlut­hafar Stoða eru 54 tals­ins. Stærstu hlut­haf­arnir eru S121 ehf. (64,5 pró­sent), Lands­bank­inn og sjóðir í stýr­ingu Stefn­is, sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tækis Arion banka.

Stærstu end­an­legu eig­endur S121 hafa margir tengsl við gamla FL Group, annað hvort störf­uðu þar eða sátu í stjórn. Má þar nefna félög tengd Magn­úsi Ármann, sem var hlut­hafi í FL Group og sat í stjórn félags­ins, Örv­ari Kjærne­sted, sem var yfir starf­semi FL Group London fyrir hrun, og Bern­hard Boga­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri lög­fræðis­viðs FL Group. Þá á Einar Örn Ólafs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Skelj­ungs, líka stóran hlut. 

Auk þess á eig­in­kona Jóns, núver­andi stjórn­ar­for­manns Stoða og nú stjórn­ar­manns í Sím­an­um, og fjöl­skylda hennar stóran hlut. Með Jóni í stjórn­inni sitja Sig­­­ur­jón Páls­­­son og Örvar Kjærne­sted. Fram­­­kvæmda­­­stjóri félags­­­ins er Júl­­­íus Þor­finns­­­son.

Helstu eignir Stoða eru 4,96 pró­sent hlutur í Arion banka, 14,05 pró­sent hlutur í Sím­anum og 9,97 pró­sent hlutur í trygg­inga­fé­lag­inu TM. Stoðir eru stærsti ein­staki eig­and­inn í bæði Sím­anum og TM, og langstærsti íslenski einka­fjár­festir­inn í Arion banka. Örvar og Einar Örn sitja báðir í stjórn TM.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent