Sigríður Halldórsdóttir, sem síðastliðinn áratug hefur starfað hjá RÚV og nú síðast í fréttaskýringaþættingum Kveik, hefur verið ráðin aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Hún tekur við starfi Sigríðar Víðis Jónsdóttur sem verið hefur aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra frá því í júní 2018. Hún hefur störf 9. desember næstkomandi.
Sigríður er með BA-próf í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst og meistaragráðu í alþjóðasamskiptum frá IBEI, Institut Barcelona d’Estudis Internacionals, í Barcelona á Spáni.
Sigríður hefur unnið við fréttir, fréttaskýringar og dagskrárgerð á RÚV síðastliðinn áratug. Í fréttatilkynningu kemur fram að auk starfa við Kveik hefur hún verið umsjónarmaður í Landanum og samið og séð um sjónvarpsþættina Ævi og Rætur. „Sigríður hefur fjórum sinnum hlotið Eddu-verðlaun ásamt félögum sínum fyrir sjónvarpsþáttagerð og fyrr á árinu var hún valin Sjónvarpsmaður ársins á Eddunni. Árið 2018 var Sigríður auk þess tilnefnd til Blaðamannaverðlaunanna fyrir umfjöllun um plastmengun. Maki Sigríðar er Jón Ragnar Ragnarsson, kennari við Menntaskólann við Hamrahlíð, og eiga þau tvær dætur; Urði 9 ára og Hallveigu 3 ára.“