Vilja færa öryrkja og aldraða upp í lágmarkslaun

Þingmenn þriggja flokka hafa lagt fram breytingartillögu við fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar.

1-mai_13896322069_o.jpg
Auglýsing

Fimmtán þing­menn þriggja flokka, Sam­fylk­ing­ar, Pírata og Flokks fólks­ins, lögðu fram breyt­ing­ar­til­lögu við frum­varp til fjár­laga fyrir árið 2020 í gær. Þau leggja til hækkun á fram­lagi til líf­eyris aldr­aðra og öryrkja svo standa megi undir kröf­unni um að engin sé með minna en lág­marks­laun í tekj­ur.

Þriðja umræða um fjár­lögin hófst á þing­inu í gær og mun halda áfram í dag. Ekki liggur ljóst fyrir hvenær atkvæða­greiðsla muni fara fram um til­lög­una.

Fyrsti flutn­ings­maður er Ágúst Ólafur Ágústs­son og með honum eru Logi Ein­ars­son, Hall­dóra Mog­en­sen, Inga Sæland, Björn Leví Gunn­ars­syni, Guð­jón S. Brjáns­son, Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, Guð­mundur Andri Thors­son, Helga Vala Helga­dótt­ir, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Jón Þór Ólafs­son, María Hjálm­ars­dótt­ir, Oddný G. Harð­ar­dótt­ir, Smári McCarthy og Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir.

Auglýsing

Kostar um 38 millj­arða að færa þessa hópa upp í lág­marks­laun

Sam­kvæmt til­lög­unni kostar það um 13 millj­arða að færa alla öryrkja upp í lág­marks­laun og um 25 millj­arða að gera það sama við alla aldr­aða, sam­tals um 38 millj­arða króna.

Breytingartillagan Mynd: Skjáskot/Þingskjöl

Hrinda af stað und­ir­skrifta­söfnun

Nú stendur yfir und­ir­skrifta­söfnun þar sem þess er kraf­ist að eng­inn sé með minna en lág­marks­laun. „Sam­kvæmt kjara­samn­ingum hafa lág­marks­laun á Íslandi verið 317 þús­und krónur á mán­uði frá 1. apríl síð­ast­liðnum og þau hækka í 335 þús­und krónur 1. apríl á næsta ári,“ segir á vef­síðu söfn­un­ar­inn­ar.

Þá kemur fram að í dag séu lægstu eft­ir­laun frá Trygg­inga­stofnun aðeins rúm­lega 248 þús­und krónur á mán­uði eða tæp­lega 69 þús­und krónum lægri en lág­marks­laun. Sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar hækki lægstu eft­ir­laun ekki um nema 3,5 pró­sent um ára­mótin og verði því rúm­lega 78 þús­und krónum lægri en lág­marks­laun í land­inu eftir 1. apríl næst­kom­andi.

Mun­ur­inn á lægsta örorku­líf­eyri og lág­marks­launum sé eilítið minni. Rúm­lega 66 þús­und krónur frá 1. apríl 2019 verði tæp­lega 76 þús­und krónur frá 1. apríl næst­kom­andi.

Verið að dæma varn­ar­laus­asta fólkið til grimmrar fátækar

„Öllum ætti að vera ljóst að með því að láta öryrkja og eft­ir­launa­fólk hafa tekjur sem eru langt undir lág­marks­launum er verið að dæma tug þús­undir af varn­ar­laus­asta fólki lands­ins til grimmrar fátækar,“ segir á vef­síðu und­ir­skrifta­söfn­un­ar­inn­ar.

Stjórn Efl­ingar styður við fyrr­nefnda und­ir­skrifta­söfnun og telur að eng­inn eigi að þurfa að lifa af lægri inn­komu en lág­marks­launum og krefst stjórnin breyt­inga.

„Fólk nær varla að draga fram lífið á lægstu launum og eng­inn ætti að vera með lægri fram­færslu en lág­marks­laun,“ segir á vef­síðu Efl­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent