Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri RÚV, segir í yfirlýsingu að ásakanir Samherja um rangfærslur í umfjöllun RÚV um Samherja og viðskipti félagsins í Namibíu, eigi ekki við rök að styðjast. Þá virðist sem Samherji sé að reyna að afvegaleiða umræðu sem hófst í kjölfar þáttar Kveiks 12. nóvember, og vega persónulega að fréttamanninum Helga Seljan.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rakel fyrir hönd RÚV, en Samherji sendi fyrr í dag frá sér tilkynningu þar sem fyrirtækið sakaði RÚV, Stundina og eftir atvikum aðra fjölmiðla, um ranga umfjöllun og óskaði eftir leiðréttingum á rangfærslum.
Tilkynningin er svohljóðandi:
„Vegna fréttatilkynningar Samherja í dag um félagið Cape Cod FS og meintar rangfærslur Ríkisútvarpsins í umfjöllun Kveiks er tilefni til að árétta nokkrar staðreyndir. Í umfjöllun Kveiks hefur aldrei verið fullyrt að Samherji eigi eða hafi átt félagið Cape Cod FS á Marshall-eyjum. Hið rétta er að Kveikur sagði frá því að Samherji notaði félagið og að starfsmaður útgerðinnar hafi haft prókúru á reikningum þess í norska bankanum DNB. Í umfjöllun Kveiks sagði orðrétt:
,,Skoðun DNB á reikningum sem bankinn taldi víst að væru tengdir Samherja tóku meðal annars til félagsins JPC Shipmanagement sem sá um ráðningarsamninga starfsmanna á skipum félagsins víða um heim. Það var sagt móðurfélag annars félags, Cape Cod Fs, á Marshall-eyjum, sem DNB taldi raunar í eigu Samherja. Enda hafði starfsmaður fyrirtækisins verið meðal prókúruhafa reikningsins og stofnandi.“
Þessi atriði eru byggð á gögnum sem WikiLeaks birti á þriðjudag og ýmsir miðlar, þar á meðal RÚV og NRK, hafa unnið fréttir upp úr.
Hvað varðar fréttatilkynningu Samherja frá 26.nóvemer sl. undir fyrirsögninni ,,Uppspuni í Ríkisútvarpinu“ skal það áréttað að ummæli Helga Seljan fréttamanns Kveiks um störf sem hafi tapast í Walvis Bay í Namibíu eru bein tilvitnun í þátt Kveiks um Samherjamálið þann 12.nóvember sl. Í þættinum er að finna frásögn Jóhannesar Stefánssonar fyrrverandi starfsmanns Samherja um þau þúsund störf sem hafi tapast og aðrar heimildir Kveiks styðja þá frásögn. Þar á meðal skrif namibískra fjölmiðla.
Ásakanir Samherja í garð fréttamannsins um ósannindi eru fráleitar. Virðast í raun snúast um tilraun fyrirtækisins til að afvegaleiða umræðuna með því að vega persónulega að fréttamanninum og draga úr trúverðugleika hans. Og líta alfarið framhjá þeim upplýsingum og gögnum sem komu fram í þætti Kveiks 12.nóvember og ummæli hans byggjast á.
Fullyrðingar Samherja í tilkynningum fyrirtækisins síðustu daga um meintar rangfærslur RÚV eiga ekki við rök að styðjast og kalla ekki á leiðréttingu eins og fyrirtækið hefur krafist.
Þar sem Samherji hefur margítrekað hafnað viðtali við Kveik um efnisatriði málsins hefur hins vegar ekki reynst unnt að fá svör við fjölmörgum spurningum.
F.h. ritstjórnar Kveiks,
Rakel Þorbergsdóttir".