Ákærur liggja fyrir í Namibíu

Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Namibíu, fyrrverandi dómsmálaráðherra landsins og þrír aðrir hafa verið ákærðir fyrir að hafa þegið 103,6 milljónir namibískra dollara í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Samherja eftirsóttan kvóta í landinu.

Sexmenningarnir leiddir fyrir rétt fyrir helgi.
Sexmenningarnir leiddir fyrir rétt fyrir helgi.
Auglýsing

Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namib­íu, Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra Namib­íu, og þrír aðrir hafa verið ákærðir fyrir að hafa þegið 103,6 millj­ónir namibískra doll­ara, jafn­virði 860 millj­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­sóttan kvóta í land­inu. Þetta kemur fram í frétt RÚV í dag. 

Í frétt­inni kemur jafn­framt fram að þeir sem komu fyrir dóm­ara í dag hafi auk Shang­hala og Eseu verið James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­ar­for­maður namibísku rík­is­út­gerð­ar­innar Fis­hcor í síð­ustu viku, Tam­son 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­sonur Esau, Ricardo Gusta­vo, sam­starfs­maður hans og Pius Mwa­telu­lo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi fjöl­skyldu­bönd­um.

Kjarn­inn greindi frá því fyrr í dag að þeir hefðu dregið til baka beiðni sína um lausn úr haldi gegn trygg­ingu og verða þeir því áfram í gæslu­varð­haldi til 20. febr­­úar næst­kom­andi.

Auglýsing

Í frétt RÚV um málið segir að Esau sé ákærður fyrir að hafa mis­beitt valdi sínu sem sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra á árunum 2014 til 2019. Shanga­la, James Hatuikulipi, Fitty Hatuikulipi og Gustavo sé gert að hafa aðstoðað Esau við að mis­beita valdi sínu og hagn­ast per­sónu­lega.

„Es­au, Shang­hala, Hatuikulipi-frænd­urnir og Gustavo eru ákærðir fyrir að hafa þegið 103,6 millj­ónir namibískra doll­ara, jafn­virði 860 millj­óna íslenskra króna, í greiðslur frá Mermaria Seafood Namibia og Esja Seafood á árunum 2014 til 2019. Þeir eru einnig ákærðir fyrir skatt­svik og að hafa blekkt namibísku rík­is­stjórn­ina,“ segir í frétt RÚV. Þá séu sex­menn­ing­arnir ákærðir fyrir pen­inga­þvætti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent