Gríðarleg aukning hefur orðið í neyslu orkudrykkja bæði á meðal framhaldsskólanema og meðal nemenda í 8 til 10 bekk grunnskóla. Meiri en helmingur framhaldsskólanema neytti orkudrykkja daglega í fyrra og rúmlega þriðjungur tíunda bekkinga. Landlæknir telur að ekki ætti að selja drykki með meira en 150 mg af koffíni börnum yngri en 18 ára.
Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur, þingmanni Vinstri grænna.
Rúmlega helmingur neytir orkudrykkja daglega
Í svari ráðherra er vitnað í niðurstöður úr rannsókn á vegum Rannsókna og greiningar við Háskólann í Reykjavík á neyslu orkudrykkja meðal barna og ungmenna. Samkvæmt niðurstöðum meðal framhaldsskólanema var hlutfall þeirra sem daglega eða oftar neytti orkudrykkja 55 prósent árið 2018. Í fyrri könnun, sem gerð var árið 2016, var hlutfallið 22 prósent og er aukningin því gríðarleg milli ára.
Orkudrykkir eiga það sameiginlegt að innihalda koffín og flestir þeirra innihalda auk þess önnur virk efni. Magn koffíns getur þó verið nokkuð mismunandi eftir drykkjartegundum.
Þá jókst neysla stelpna í framhaldsskóla mun meira en stráka en neysla þeirra nærri fjórfaldaðist á milli ára, fór úr 14 prósentum árið 2016 í 54 prósent árið 2018. Hjá strákum fór dagleg neysla úr 30 prósent árið 2016 í 55 prósent í fyrra.
Fjórir eða fleiri orkudrykkir á dag
Í rannsókninni kom jafnframt fram að 78 prósent þeirra sem sofa of lítið (um 7 klukkustundir eða minna) drekka fjóra eða fleiri orkudrykki daglega sem innihalda koffín.
Þegar niðurstöður meðal grunnskólanema eru skoðaðar sést að alls neyttu 28 prósent nemenda í 8 til 10 bekk orkudrykkja daglega í fyrra. Það er töluverð aukning frá fyrri könnun sem gerð var 2016 en þá var hlutfallið 16 prósent.
Í niðurstöðunum má jafnframt sjá að dagleg neysla orkudrykkja eykst með hækkandi aldri hjá báðum kynjum en þó neyta fleiri strákar en stelpur orkudrykkja. Árið 2018 var hlutfallið 20 prósent í 8. bekk, 29 prósent í 9. bekk og 35 prósent í 10. bekk.
Hagnaðurinn aukist um 740 prósent
Nocco er ein þeirra orkudrykkjategunda sem notið hefur hvað mestra vinsælda hér á landi á síðustu árum. Heildsalan sem flytur þá inn til landsins, ásamt öðrum vörum, er Core og hafa rekstrartekjur Core aukist gífurlega á síðustu árum.
Í frétt Viðskiptablaðsins um tekjur Core segir að rekstrartekjur fyrirtækisins hafi numið 440 milljónum króna árið 2016 en árið 2018 voru þær komnar í tæpa 1,8 milljarða króna. Á tveimur árum jukust tekjurnar því um 310 prósent. Á sama tímabili jókst hagnaðurinn úr 23 milljónum króna í 193 milljónir, eða um 740 prósent.
Meta áhættu af koffínneyslu ungmenna
Í svari ráðherra við fyrrnefndri fyrirspurn Rósu Bjarkar um hvort að ráðuneytið hafi upplýsingar um tilvik þar sem neysla orkudrykkja hafi haft bein áhrif á heilsufar neytenda segir að samkvæmt upplýsingum frá Landspítala hafa komið upp nokkur tilvik þar sem einstaklingar hafa leitað á bráðamóttöku með almenn einkenni vegna neyslu orkudrykkja. Algengustu einkenni eru hraður hjartsláttur, óróleikatilfinning, svimi, eirðarleysi og kvíði en engin staðfest alvarleg einkenni af völdum orkudrykkja meðal einstaklinga sem hafa leitað á bráðadeild.
Embætti Landlæknis telur að banna ætti sölu á orkudrykkjum sem innihalda 320 mg eða meira af koffíni á hvern lítra en slíka drykkja má ekki selja hér á landi nema með sérstökuleyfi Matvælastofnunar. Nokkrar slíkar vörur hafa fengið slíkt leyfi. Jafnframt telur Landlæknir að ekki ætti að selja drykki með koffíni á bilinu 150 til 230 mg börnum yngri en 18 ára.
Í svari ráðherra kemur jafnframt fram að Matvælastofnun hefur óskað eftir því að nýsett áhættunefnd matvæla meti áhættu af koffínneyslu ungmenna.