Segja Trump hafa brotið af sér

Sérfræðingar sem kallaðir voru til yfirheyrslu í Bandaríkjaþingi í dag, sögðu Bandaríkjaforseta hafa gerst sekan um brot sem gæti kostað hann embættið.

h_53647472.jpg Donald Trump forseti bandaríkin
Auglýsing

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti gerð­ist sekur um brot í starfi, með því að taka sér­hags­muni sína fram yfir þjóð­ar­hags­muni í sam­skiptum við annað þjóð­ríki, að mati sér­fræð­inga sem kall­aðir voru fyrir Banda­ríkja­þing í dag, til að ræða um rann­sókn­ar­ferlið sú er í gangi sem leitt getur til emb­ætt­is­missis (impeach­ment). 

Demókratar segja Trump hafa gerst brot­legan, meðal ann­ars með því að þrýsta á um rann­sókn á Joe Biden, fyrr­ver­andi vara­for­seta og nú for­seta­fram­bjóð­anda, en líka með því að fylgja ekki form­legum leiðum í sam­skiptum við önnur ríki, í þessu til­felli Úkra­ín­u. 

Skýrsla var gefin út af rann­sókn­ar­nefnd þings­ins í gær.

Auglýsing

Sam­kvæmt umfjöllun New York Times lét Mich­ael J. Ger­hardt, pró­fessor við Uni­versity of North Carol­ina, hafa eftir sér í vitn­is­burði, að ef þær stað­reyndir um sam­skipti Trump og sam­starfs­manna hans við Úkra­ínu, væru ekki atriði sem leitt gætu til emb­ætt­is­miss­is, þá væru í raun engin atriði sem gætu gert það. Svo aug­ljós væru brot Trump, einkum gagn­vart stjórn­ar­skrá lands­ins en einnig gagn­vart form­legum reglum um hvernig ætti að haga sam­skiptum við önnur ríki í til­felli for­seta. 



Noah Feld­man, pró­fessor við Harvard, gekk raunar lengra en Ger­hardt, og sagði að ef það væri ekki hægt að láta það leiða til emb­ætt­is­miss­is, að taka eig­in­hags­muni fram yfir þjóð­ar­hags­muni, þá væri lýð­ræðið í raun ekki fyrir hend­i. 

Repúblikanar köll­uðu fyrir Jon­athan Tur­ley, pró­fessor við Geor­getown Uni­versity, sem sagð­ist ótt­ast það að Demókratar væru að teygja lopann, og ná því fram að athafnir Trumps myndu leiða til emb­ætt­is­miss­is, án þess að nægi­legar sann­anir væru á borð­in­u. 



Sam­kvæmt umfjöllun New York Times, er búist við að harka­lega verði deil í Banda­ríkja­þingi næstu daga, þegar mat verður lagt á það hvort Trump hafi brotið af sér, eða ekki. Mike Pence vara­for­seti er sagður beita sér af hörku, og segir Repúblik­ana þurfa að standa saman og taka til varna, eins og það er orðað í umfjöllun New York Times.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent