Verkefnastofa Borgarlínu hefur skipað hönnunarteymi fyrir fyrstu tvo áfanga Borgarlínu. Hönnunasrteymið mun vinna frumdrög að fyrstu framkvæmdum Borgarlínu. Um er að ræða tvær framkvæmdalotur sem alls munu verða um 13 kílómetrar. Hamraborg – Hlemmur og Ártún – Hlemmur. Vinna við hönnun er þegar hafin og er gert ráð fyrir að fyrstu tillögur verði tilbúnar í vor.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Borgarlínu.
Hrafnkell Ásólfur Proppé, verkefnastjóri Borgarlínu, segir það vera einkar ánægjulegt að ná þessu hönnunarteymi saman, allt sé þetta úrvals fólk og tilbúið í verkefnið. „Þegar afraksturinn liggur fyrir í vor þá mun fólks átta sig betur á hvernig Borgarlínan mun hafa jákvæðar breytingar á borgarumhverfið með bættum aðstæðum fyrir almenningssamgöngur, gangandi og hjólandi. Jafnframt mun á þeim tíma liggja fyrir tillaga að leiðarkerfi, greining á vagnakostum m.t.t. loftslagsmála, greining á rekstarkostnaði og mat á hagrænum sem samfélagslegum þáttum.“
Samkvæmt Borgarlínu mun hönnunarteymið heyra undir Verkefnastofu Borgarlínu. Erlendir ráðgjafar frá BRTPlan munu veita hönnunarteyminu sérfræðiráðgjöf á sviði BRT (Bus Rapid Transit) kerfa. Þá kemur fram í tilkynningunni að BRTPLan starfi í New York í Bandaríkjunum og hafi fyrirtækið komið að skipulagi og framkvæmdum kerfa í Norður- og Suður-Ameríku, Asíu, Afríku og Evrópu. Við hönnun verði horft til samgangna, uppbyggingar húsnæðis og mannlífs. Leitað hafi verið til íslenskra verkfræðistofa og sveitarfélagana á höfuðborgarsvæðinu eftir sérfræðingum í hönnunarteymið sem er skipað eftirfarandi sérfræðingum.
Hönnunarteymi Borgarlínu er sem hér segir: Hallbjörn R. Hallbjörnsson, Vegagerðinni, Kristinn H. Guðbjartsson, Verkís, Ingólfur Ingólfsson, Hnit, Svanhildur Jónsdóttir, VSÓ, Stefán Gunnar Thors, VSÓ, Edda Ívarsdóttir, Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur, Hrafnkell Ásólfur Próppé, Verkefnastofu Borgarlínu (VB). Neðri röð: Birkir Ingibjartsson, Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur, Hildur Inga Rós Raffnsöe, Umhverfissvið Kópavogs, Walter Hook BRTPlan. Bryndís Friðriksdóttir og Lilja G. Karlsdóttir báðar frá VB.