Í erfiðu ástandi sem skapaðist víða um land vegna fárviðris og langvarandi rafmagnsleysis virðist sem stjórnendur helstu orkufyrirtækja landsins varpi ábyrgð á landeigendur og náttúruverndarfólk. Fáeinir stjórnmálamenn hafa í fljótfærni tekið undir þennan málflutning og kalla eftir aðgerðum sem auðvelda fyrirtækjum að ráðast í umdeildar framkvæmdir. Þessi upphlaup eru óheppileg svo vægt sé til orða tekið.
Með þessum orðum hefst fréttatilkynning sem stjórn Landverndar sendi frá sér í vikunni. Tilefnið eru umræður eftir mikið fárviðri sem geisaði yfir Ísland í síðustu viku.
Samkvæmt stjórn Landverndar þarf að greina veikustu hlekkina í raforkukerfi landsins. „Þetta er afar mikilvægt þar sem búast má því við að tíðni ofsaveðurs fari vaxandi í framtíðinni vegna öfga í veðurfari sem óhjákvæmilega eru fylgifiskur hættulegra breytinga á veðurfari af mannavöldum,“ segir í tilkynningunni.
Leggja áherslu á að auka notkun jarðstrengja
Þá kemur enn fremur fram hjá stjórninni að afhendingaröryggi raforku fyrir almenna notkun sé ein mikilvægasta undirstaða velsældar í landinu. Landvernd hafi í því sambandi lagt áherslu á að auka notkun jarðstrengja þar sem það dragi úr neikvæðum sjónrænum áhrifum og auki afhendingaröryggi. Þessi sjónarmið hafi gleðilega átt vaxandi fylgi að fagna.
Í þeim tilfellum þegar Landvernd hefur gert athugasemdir við raflínulagnir hafi það verið vegna lína fyrir stóriðju og þegar mikil náttúruverðmæti séu í húfi ef loftlína yrði reist. Aðeins í tveimur tilfellum hafi samtökin farið með mál fyrir dómsstóla, eins og heimilt er í löndum sem skilgreina sig réttarríki.
Bætt orkunýtni ein vannýttasta auðlind landsins
Í tilkynningu stjórnar Landverndar kemur jafnframt fram að srá 2011 til 2018 hafi raforkuframleiðsla aukist á Íslandi úr 16,8 í 19, 8 teravattstundir, eða um tæplega 18 prósent. Á sama tíma hafi íbúum fjölgað um tæplega 12 prósent. Fram hafi komið fréttir frá orkuframleiðendum að þeir geti aukið nýtni núverandi orkuvera á næstu árum meðal annars vegna endurnýjunar tækja og breyttu vatnafari vegna bráðnunar jökla. Ódýrasti virkjunarkosturinn, bætt orkunýtni, sé ein vannýttasta auðlind landsins.
„Allt tal um að umdeildar virkjanir sem stórskaða náttúruarf þjóðarinnar séu nauðsynlegar fyrir orkuöryggi landsins er því villandi málflutningur. Orka til almennra nota er nægjanleg enda fara liðlega 80 prósent raforkuframleiðslu í dag til stóriðju og í bit-coin gröft sem ekki skapar samfélagsleg verðmæti,“ segir í tilkynningunni.
Landvernd lýsir eftir að ástæður fyrir þeim vanda sem skapaðist vegna rafmagnsleysis í undanfarna daga verði grandskoðaðar. „Þegar öll kurl koma til grafar verði leitað að hagkvæmum lausnum sem ekki valda skaða á náttúru landsins til að styrkja flutning á rafmagni til almennra nota til framtíðar, þar sem hætta á ofsaveðri fer vaxandi. Þar til þetta liggur fyrir er heppilegast að staldra við frekar enn að leita að sökudólgum.“