Viðsemjendur BSRB geta ekki sýnt félagsmönnum þá óvirðingu að draga viðræður um nýjan kjarasamning von úr viti og nú er kominn tími til að opinberir starfsmenn beiti þeim vopnum sem þeir hafa til að þrýsta á um gerð kjarasamnings.
Þetta kemur fram í pistli sem Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, skrifar og birtist á vefsíðu bandalagsins í dag. Í pistlinum fer hún yfir stöðuna í kjaraviðræðunum og öðrum verkefnum sem BSRB hefur sinnt á árinu sem er að líða.
„Við erum að vinna að mestu breytingum á vinnutíma opinberra starfsmanna frá því lög um 40 stunda vinnuviku voru sett fyrir nærri hálfri öld síðan og það skiptir máli að vanda til verka. Stytting vinnuvikunnar án launaskerðingar hefur verið krafa BSRB um langt árabil og þegar ekki sér til lands eftir níu mánaða viðræður er ljóst að við þurfum að endurskoða aðferðafræðina,“ skrifar hún.
Hún segir jafnframt að í gegnum tíðina hafi opinberir starfsmenn þurft að standa í harðvítugri baráttu til að ná fram mikilvægum kjarabótum. Þar hafi skipt gríðarmiklu máli sú góða samstaða sem náðst hafi og sá þrýstingur sem sameinað afl rúmlega 22 þúsund félagsmanna í aðildarfélögum BSRB geti beitt.
Fólk verður að geta lifað af á launum sínum
Sonja telur að á nýju ári þurfi opinberir starfsmenn á þessari samstöðu að halda enn á ný. Full samstaða sé innan BSRB um að ekki verði gengið til kjarasamninga nema fólk geti lifað af á launum sínum, vinnuvikan verði stytt hjá bæði dagvinnufólki og gengið verði enn lengra hjá vaktavinnufólki, tekið verið skref í átt að jöfnun launa á milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins og samið verði um bætt starfsumhverfi og launaþróunartryggingu.
Hún segir að tíminn sé runninn frá þeim. „Við getum ekki beðið samningslaus, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð. Viðsemjendur geta ekki sýnt okkar félagsmönnum þá vanvirðingu að draga samningaviðræður von úr viti. Nú þurfum við að beita þeim vopnum sem við höfum til að tryggja þetta mikla hagsmunamál. Breytist viðhorf viðsemjenda okkar ekki snarlega á nýju ári má búast við að við förum að huga að aðgerðum snemma á næsta ári,“ skrifar hún.
Hægt er að lesa pistilinn í heild sinni hér.