Ætla að huga að aðgerðum í byrjun næsta árs

Formaður BSRB segir að ef viðhorf viðsemjenda þeirra breytist ekki snarlega á nýju ári þá megi búast við að þau fari að huga að aðgerðum snemma á næsta ári.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Auglýsing

Við­semj­endur BSRB geta ekki sýnt félags­mönnum þá óvirð­ingu að draga við­ræður um nýjan kjara­samn­ing von úr viti og nú er kom­inn tími til að opin­berir starfs­menn beiti þeim vopnum sem þeir hafa til að þrýsta á um gerð kjara­samn­ings. 

Þetta kemur fram í pistli sem Sonja Ýr Þor­bergs­dótt­ir, for­maður BSRB, skrifar og birt­ist á vef­síðu banda­lags­ins í dag. Í pistl­inum fer hún yfir stöð­una í kjara­við­ræð­unum og öðrum verk­efnum sem BSRB hefur sinnt á árinu sem er að líða.

„Við erum að vinna að mestu breyt­ingum á vinnu­tíma opin­berra starfs­manna frá því lög um 40 stunda vinnu­viku voru sett fyrir nærri hálfri öld síðan og það skiptir máli að vanda til verka. Stytt­ing vinnu­vik­unnar án launa­skerð­ingar hefur verið krafa BSRB um langt ára­bil og þegar ekki sér til lands eftir níu mán­aða við­ræður er ljóst að við þurfum að end­ur­skoða aðferða­fræð­ina,“ skrifar hún.

Auglýsing

Hún segir jafn­framt að í gegnum tíð­ina hafi opin­berir starfs­menn þurft að standa í harð­vít­ugri bar­áttu til að ná fram mik­il­vægum kjara­bót­um. Þar hafi skipt gríð­ar­miklu máli sú góða sam­staða sem náðst hafi og sá þrýst­ingur sem sam­einað afl rúm­lega 22 þús­und félags­manna í aðild­ar­fé­lögum BSRB geti beitt.

Fólk verður að geta lifað af á launum sínum

Sonja telur að á nýju ári þurfi opin­berir starfs­menn á þess­ari sam­stöðu að halda enn á ný. Full sam­staða sé innan BSRB um að ekki verði gengið til kjara­samn­inga nema fólk geti lifað af á launum sín­um, vinnu­vikan verði stytt hjá bæði dag­vinnu­fólki og gengið verði enn lengra hjá vakta­vinnu­fólki, tekið verið skref í átt að jöfnun launa á milli almenna og opin­bera vinnu­mark­að­ar­ins og samið verði um bætt starfs­um­hverfi og launa­þró­un­ar­trygg­ingu.

Hún segir að tím­inn sé runn­inn frá þeim. „Við getum ekki beðið samn­ings­laus, viku eftir viku, mánuð eftir mán­uð. Við­semj­endur geta ekki sýnt okkar félags­mönnum þá van­virð­ingu að draga samn­inga­við­ræður von úr viti. Nú þurfum við að beita þeim vopnum sem við höfum til að tryggja þetta mikla hags­muna­mál. Breyt­ist við­horf við­semj­enda okkar ekki snar­lega á nýju ári má búast við að við förum að huga að aðgerðum snemma á næsta ári,“ skrifar hún.

Hægt er að lesa pistil­inn í heild sinni hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent