Arctic Adventures og Into the Glacier sameinast

Ferðaþjónustufyrirtækin Arctic Adventures og Into the Glacier hafa sameinast og stefna á skráningu á hlutabréfamarkað innan tveggja ára. Samanlögð velta fyrirtækjanna tveggja á árinu 2019 er um 7 milljarðar króna.

Jökull. Mynd: Into the Glacier
Auglýsing

Arctic Adventures hf. og fram­taks­sjóð­ur­inn Icelandic Tourism Fund I (IT­F) hafa gengið frá sam­komu­lagi um sam­ein­ingu Arctic Adventures og Into the Glacier ehf. Í kjöl­farið verður til stór­fyr­ir­tæki með yfir 400 starfs­menn sem sinnir ferða­tengdri afþr­ey­ingu í öllum lands­hlut­um. Þá er stefnt að því að skrá sam­ein­aða félagið á hluta­bréfa­markað innan tveggja ára. Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu frá fyr­ir­tækj­un­um.

Kaupir hlut í fjórum afþrey­ing­ar­fyr­ir­tækjum

Sam­an­lögð velta Into the Glacier og Artic Adventures á árinu 2019 er um 7 millj­arðar króna. Into the Glacier er ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem býður upp á ferðir inn í ísgöngin í Langjökli sem eru stærstu mann­gerðu ísgöng í heimi. Hátt í 60 þús­und manns hafa heim­sótt ísgöngin á árinu.

Artic Adventures er eitt stærsta ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið á Íslandi þegar kemur að afþrey­ing­ar­tengdri ferða­þjón­ust­u. Á árinu 2019 voru við­skipta­vinir fyr­ir­tæk­is­ins um 250 þús­und. 

Auglýsing

Sam­hliða sam­ein­ing­unni kaupir Arctic Adventures hluti ITF í fjórum afþrey­ing­ar­fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ustu: Óbyggða­setri Íslands í Fljóts­dal, Rauf­ar­hóli ehf., Skútu­sigl­ingum ehf. á Ísa­firði og Welcome Enterta­in­ment ehf. 

Í til­kynn­ing­unni segir að kaup­verðið greið­ist með hlutum í Arctic Adventures hf., sem þýði að ITF verður eftir við­skiptin stór hlut­hafi í sam­ein­aða félag­inu. Jafn­framt kemur fram í til­kynn­ing­unni að félögin fjögur verði áfram rekin sjálf­stætt en í nán­u ­sam­starfi við Arct­ic A­dventures. 

Stefna á hluta­bréfa­markað innan tveggja ára 

Iceland­ic Tourism Fund er fram­taks­sjóður rek­inn af Lands­bréf­um, stofn­aður að frum­kvæði Icelandair Group árið 2013. ­Mark­miðið með stofnun sjóðs­ins var að fjár­festa í upp­bygg­ingu afþrey­ing­ar­tengdrar ferða­þjón­ustu á Íslandi.

Helgi Júl­í­us­son, fram­kvæmda­stjóri ITF segir að sam­ein­ingin sé fagn­að­ar­efni fyrir íslenska ferða­þjón­ustu: „Við getum nýtt krafta félag­anna enn bet­ur, náum fram umtals­verðri hag­ræð­ingu og aukum slag­kraft­inn til muna þegar kemur að sölu og mark­aðs­setn­ingu. Arctic Adventures hefur mjög sterka stöðu á mark­aði fyrir afþrey­ing­ar­tengda ferða­þjón­ustu. Sú staða styrk­ist enn frekar í kjöl­far þess­ara við­skipta og getur fyr­ir­tækið nú boðið upp á fyrsta flokks afþr­ey­ingu í öllum lands­hlut­u­m.“

Styrmir Þór Braga­son, for­stjóri Arctic Adventures, segir sam­keppn­is­staða fyr­ir­tæk­is­ins styrk­ist í kjöl­far sam­ein­ing­ar­inn­ar. „Það skiptir mjög miklu að geta boðið ferða­fólki fjöl­breytta afþr­ey­ingu. Við sjáum enn frek­ari tæki­færi til vaxtar á næstu miss­erum og stefnum ótrauð að skrán­ingu á hluta­bréfa­markað innan tveggja ára.“ segir Styrmir Þór. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent