Efling hefur slitið samningaviðræðum við Reykjavíkurborg. Bréf þess efnis var sent ríkissáttasemjara og Reykjavíkurborg eftir hádegi í dag. Þetta kemur fram á vefsíðu stéttarfélagsins í dag.
Í tilkynningu Eflingar kemur fram að samninganefnd félagsins, sem er skipuð fulltrúum starfsfólks borgarinnar, hafi tekið þessa ákvörðun eftir fund með samninganefnd Reykjavíkurborgar í gær, fimmtudaginn 19. desember. Á þeim fundi hafi samninganefnd Eflingar þótt verða endanlega ljóst hversu lítinn skilning borgin hefði sýnt þeim málefnum sem nefndin hafi reynt að fá rædd.
Viðræðuslitin þýða að ríkissáttasemjari boðar fundi á tveggja vikna fresti, lögum samkvæmt, og færa stéttarfélagið nær boðun verkfalla.
Næstum enginn árangur hefur náðst
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að þau hafi frá fyrsta degi tekið þátt í þessum viðræðum af fullri alvöru, í þeim tilgangi að fá loksins langþráða leiðréttingu á launum og vinnuaðstæðum fólksins hjá borginni. „Við höfum setið við samningaborðið frá því í vor og það er þyngra en tárum taki að segja frá því að því sem næst enginn árangur hefur náðst þar. Fundurinn í gær tók af öll tvímæli um það.“
Hún segir enn fremur að þau hafi í nærri níu mánuði reynt að brjótast gegnum raunveruleikarofið sem ríki meðal hæst settu ráðamanna borgarinnar. „Við höfum reynt að benda á hversu kaldranaleg stefna þeirra er gagnvart lægst launaða starfsfólkinu. Það hefur einfaldlega ekki tekist. Það er ótrúlegt að horfa uppá það hversu mikið virðingarleysi formaður samninganefndar Reykjavíkurborgar og borgarstjórinn sjálfur eru fær um að sýna eigin starfsfólki,“ segir hún.
Starfsfólki í mötuneytum bannað að borða matinn sem það eldar
Þá bendir Efling á að síðustu vikur hafi stéttarfélagið birt viðtöl við félagsmenn sem starfa hjá borginni. Þau lýsi óhóflegu álagi, sultarlaunum og ófaglegri framkomu stjórnenda hjá borginni. Meðal annars sé starfsfólki í mötuneytum, sem tilheyra lægst launaða hópnum á íslenskum vinnumarkaði, bannað að borða matinn sem það eldar og því gert að henda afgangsmat í ruslið.
Sólveig Anna segir að borgin leyfi sér þessa fáránlegu framkomu gagnvart eigin starfsfólki, þennan yfirgengilega hroka, meðan borgarstjórnin fái sér andabringur á kostnað borgarbúa og setji sér sjálf reglur um eigin laun. „Það er svo langt milli þessa fólks og raunveruleikans að þau virðast einfaldlega ekki skilja hann.“
Jólasögur úr borginniVissir þú að í eldhúsum borgarinnar er starfsfólk á lágmarkslaunum skikkað til að henda afgangs mat í ruslið? Jóhanna Þrúður Jóhannesdóttir og Ingibjörg Hrönn Sveinsdóttir vinna í félagsmiðstöðinni í Hvassaleiti. Þær sjá um að eldra fólk borgarinnar fái að borða á aðventunni sem og alla aðra daga ársins. Þær hafa áratuga starfsreynslu á sínu sviði og fá fyrir sitt mikilvæga framlag bæði svívirðilega lág laun og óviðunandi virðingarleysi frá atvinnurekenda sínum Reykjavíkurborg. Þær eiga skilið mannsæmandi laun og virðingu! Er það ekki sanngjörn krafa? Tónlist: Perfume (GE Music Box Mix) by George_Ellinas (CC BY-NC) Que Sera by Calling Sister Midnight (CC BY-NC) Auld Lang Syne by Jeris (CC BY)
Posted by Efling on Thursday, December 19, 2019