Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur gert tillögu til forseta Íslands um skipun Ingveldar Einarsdóttur, dómara við Landsrétt, sem dómara við Hæstarétt Íslands frá 1. janúar 2020. Við skipan Ingveldar í Hæstarétt losnar embætti eins dómara í Landsrétti og verður það embætti auglýst laust til umsóknar fljótlega, samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá stjórnarráðinu.
Þau Ingveldur, Davíð Þór Björgvinsson og Sigurður Tómas Magnússon voru af dómnefnd metin hæfust þeirra átta umsækjenda sem sóttu um lausa stöðu við Hæstarétt.
Fyrir lá, í ljósi mikils kynjahalla í Hæstarétti, að líklegt yrði að Ingveldur yrði skipuð en af þeim sem nú sitja í Hæstarétti er einungis ein kona, Gréta Baldursdóttir. Hún er komin á eftirlaunaaldur.
Þeir hættu störfum frá og með 1. október. Samhliða átti að fækka dómurum við Hæstarétt úr átta í sjö, líkt og staðið hefur til frá því að nýju millidómstígi, Landsrétti, var komið á. Eitt embætti dómara við Hæstarétt var því auglýst til umsóknar.
Mennirnir tveir voru afar reynslumiklir dómarar. Markús hafði verið dómari við Hæstarétt Íslands frá árinu 1994, eða í 25 ár. Hann var varaforseti Hæstaréttar 2002 og 2003 og forseti Hæstaréttar 2004 og 2005 og frá 1. janúar 2012 til loka árs 2016. Áður en að Markús var skipaður dómari var hann meðal annars prófessor í réttarfari við lagadeild Háskóla Íslands 1988 -1994. Enginn dómara við Hæstarétt í dag kemst nálægt því að hafa setið þar jafn lengi og Markús. Sá sem kemst næst því er Ólafur Börkur Þorvaldsson sem var skipaður í embætti árið 2003.
Þar á eftir kom Viðar Már sem var skipaður 2010. Hann var varaforseti Hæstaréttar Íslands frá byrjun árs 2012 og út árið 2016. Viðar Már var prófessor í skaðabótarétti við lagadeild Háskóla Íslands 1996 – 2010 og var auk þess settur hæstaréttardómari í aðdraganda þess að hann var skipaður í embættið, eða á árunum 2009 til 2010.