Ingveldur skipuð nýr Hæstaréttardómari

Ingveldur Einarsdóttir hefur verið skipuð dómari við Hæstarétt. Hún var ein af þremur sem dómnefnd mat hæfasta af umsækjendum.

Dómssalur 1 í Hæstarétti Íslands.
Dómssalur 1 í Hæstarétti Íslands.
Auglýsing

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur gert til­lögu til for­seta Íslands um skipun Ing­veldar Ein­ars­dótt­ur, dóm­ara við Lands­rétt, sem dóm­ara við Hæsta­rétt Íslands frá 1. jan­úar 2020. Við skipan Ing­veldar í Hæsta­rétt losnar emb­ætti eins dóm­ara í Lands­rétti og verður það emb­ætti aug­lýst laust til umsóknar fljót­lega, sam­kvæmt því sem fram kemur í til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­in­u. 

Þau Ing­veld­ur, Davíð Þór Björg­vins­­son og Sig­­urður Tóma­s ­­Magn­ús­­son voru af dóm­­nefnd metin hæfust þeirra átta umsækj­enda sem sóttu um lausa stöðu við Hæsta­rétt. 

Fyrir lá, í ljósi mik­ils kynja­halla í Hæsta­rétti, að lík­legt yrði að Ing­veldur yrði skip­uð en af þeim sem nú sitja í Hæsta­rétti er ein­ungis ein kona, Gréta Bald­­ur­s­dótt­­ir. Hún er komin á eft­ir­­launa­ald­ur. 

Auglýsing
Tveir hæsta­rétt­­­ar­­­dóm­­­ar­­­ar, Markús Sig­­­ur­­­björns­­­son og Viðar Már Matt­h­í­a­s­­­son ósk­uðu í ágúst eftir lausn frá emb­ætti dóm­­­ara við Hæsta­rétt. 

Þeir hættu störfum frá og með 1. októ­ber. Sam­hliða átti að fækka dóm­­­urum við Hæsta­rétt úr átta í sjö, líkt og staðið hefur til frá því að nýju milli­­­­­dóm­­­stígi, Lands­rétti, var komið á. Eitt emb­ætti dóm­­­ara við Hæsta­rétt var því aug­lýst til umsókn­­ar.

Menn­irnir tveir voru afar reynslu­­miklir dóm­­ar­­ar. Markús hafði verið dóm­­­ari við Hæsta­rétt Íslands frá árinu 1994, eða í 25 ár. Hann var vara­­­for­­­seti Hæsta­réttar 2002 og 2003 og for­­­seti Hæsta­réttar 2004 og 2005 og frá 1. jan­úar 2012  til loka árs 2016. Áður en að Markús var skip­aður dóm­­­ari var hann meðal ann­­­ars pró­­­fessor í rétt­­­ar­fari við laga­­­deild Háskóla Íslands 1988 -1994. Eng­inn dóm­­­ara við Hæsta­rétt í dag kemst nálægt því að hafa setið þar jafn lengi og Mark­ús. Sá sem kemst næst því er Ólafur Börkur Þor­­­valds­­­son sem var skip­aður í emb­ætti árið 2003.

Þar á eftir kom Viðar Már sem var skip­aður 2010. Hann var vara­­­for­­­seti Hæsta­réttar Íslands frá byrjun árs 2012 og út árið 2016. Viðar Már var pró­­­fessor í skaða­­­bóta­rétti við laga­­­deild Háskóla Íslands 1996 – 2010 og var auk þess settur hæsta­rétt­­­ar­­­dóm­­­ari í aðdrag­anda þess að hann var skip­aður í emb­ætt­ið, eða á árunum 2009 til 2010. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent