Bannað verður hér á landi að setja tilteknar, algengar einnota vörur úr plasti á markað, samkvæmt nýju frumvarpi Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og aulindaráðherra. Lagt er til að lögin öðlist að meginstefnu gildi þann 3. júlí árið 2021.
Drög að frumvarpinu eru komin á samráðsgátt stjórnvalda en umsagnarfrestur er til 16. janúar næstkomandi.
Meðal vara sem bannað verður að setja á markað eru einnota bómullarpinnar úr plasti, hnífapör, diskar, sogrör, hræripinnar og blöðruprik sem og matarílát, drykkjarílát og bollar úr frauðplasti. Undantekningar eru gerðar ef vörur flokkast sem lækningatæki.
Sömuleiðis er lagt til að óheimilt verði að afhenda endurgjaldslaust einnota bolla og matarílát úr öðru plasti en frauðplasti sem ætluð eru undir drykki og matvæli til neyslu, líkt og algengt er á skyndibitastöðum. Skal gjaldið vera sýnilegt á kassakvittun.
Markmiðið að draga úr áhrifum af notkun plasts
Meginmarkmið frumvarpsins er að draga úr áhrifum af notkun plasts á umhverfið og heilsu fólks og styðja við notkun endurnotanlegra vara en með því er innleidd ný Evróputilskipun sem er fyrst og fremst beint að ýmsum algengum plastvörum sem finnast helst á ströndum.
Tilskipuninni er einnig ætlað að styðja við myndun hringrásarhagkerfis og efla úrgangsforvarnir með því að styðja við notkun sjálfbærra og endurnotanlegra vara, fremur en einnota vara.
Skilyrðislaust bann við að setja vörur á markað úr oxó-plasti
Þá er í frumvarpinu lagt til skilyrðislaust bann við því að setja vörur á markað sem gerðar eru úr plasti sem er niðurbrjótanlegt með oxun eða svokallað oxó-plast.
Vörur úr slíku plasti hafa rutt sér til rúms á markaði síðustu ár, einkum vissar tegundir plastpoka, en eðli þess er að sundrast í öragnir sem eru skaðlegar heilsu og umhverfi og er vaxandi vandi á alþjóðavísu, að því er kemur fram í frumvarpsdrögum.
Í frumvarpinu er enn fremur kveðið á um sérstaka merkingu sem tilteknar einnota plastvörur eiga að bera um meðhöndlun vörunnar eftir notkun og þau neikvæðu áhrif sem varan hefur berist hún út í umhverfið. Þær vörur sem greinin mun taka til eru ýmsar tíðavörur, blautþurrkur til heimilis– og einkanota, ýmsar tóbaksvörur og bollar fyrir drykkjarvörur.
Staðgönguvörur fáanlegar
Einnota drykkjarílát úr plasti sem eru með tappa eða lok úr plasti verður samkvæmt frumvarpinu einungis heimilt að setja á markað ef tappinn eða lokið, er áfastur ílátinu á meðan notkun þess stendur yfir.
Í tilfelli plastvaranna sem frumvarpið tekur til eru fáanlegar á markaði staðgönguvörur sem eru margnota eða innihalda ekki plast og nota má í staðinn.