Héraðsdómur Vestfjarða vísaði í dag frá dómsmáli hluta landeigenda Drangavíkur á Ströndum á hendur VesturVerki ehf. og Árneshreppi.
Dómurinn hefur ekki verið birtur enn á vefsíðu Héraðsdóms Vestfjarða, en í tilkynningu frá Vesturverki segir að dómurinn telji það ósannað að eigendur Drangavíkur eigi það land sem framkvæmdir á svæðinu - sem deilan snýst um - varða.
Landeigendur höfðuðu mál gegn Vesturverki og Árneshreppi í lok sumars og kröfðust þess að framkvæmdaleyfi Vesturverks, fyrir framkvæmdum á Ófeigsfjarðarheiði vegna Hvalárvirkjunar, yrði fellt úr gildi sem og deiliskipulag vegna framkvæmdanna. Eru því stefnendur í málinu ekki taldir hafa lögvarða hagsmuni vegna málsins.
Dómurinn telur jafnframt að ekki hafi verið sýnt fram á að röskun verði á hagsmunum eigenda Drangavíkur sem réttlætt geti aðild þeirra að málinu, að því er segir í tilkynningu frá Vesturverki.
Dómurinn dæmdi stefnendur til þess að greiða Árneshreppi og Vesturverki ehf. kr. 600.000,-, hvorum fyrir sig, í málskostnað vegna málsins.