Ný lög um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs byggja á tillögum starfshóps mennta- og menningarmálaráðherra um aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Lögin heimila ráðherra að fela þriðja aðila að sinna hlutverki samskiptaráðgjafa og á þeim grundvelli var ráðist í útboð á þjónustunni.
Þrír aðilar sóttust eftir því að annast ráðgjöfina og að loknu formlegu mati var Domus Mentis – Geðheilsustöð talin hæfust. Í dag var því skrifað undir samstarfssamning ráðuneytisins og Domus Mentis.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu í dag.
„Domus Mentis veitir einstaklingum, fjölskyldum, fyrirtækjum og stofnunum víðtæka þjónustu sem stuðlar að bættri líðan og geðheilsu fólks. Hjá fyrirtækinu starfar fagfólk með breiða þekkingu á félags- heilbrigðis- og réttarvörslukerfinu, sálfræði, geðlæknisfræði, hjúkrunar- og kynfræði og félagsráðgjöf,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Í tilkynningunni segir enn fremur að samskiptaráðgjafanum sé meðal annars ætlað að leiðbeina einstaklingum sem til hans leita vegna atvika eða misgerða sem orðið hafa í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi sem varði til að mynda einelti, ofbeldi eða kynbundna eða kynferðislega áreitni. Þá muni ráðgjafinn einnig veita íþrótta- og æskulýðsfélögum og -samtökum fræðslu og ráðgjöf.
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, segir það vera afar mikilvægt að tryggja framvindu þessa máls og ánægjulegt að hægt sé með markvissari hætti en áður að stuðla að auknu öryggi iðkenda. „Samfélagið okkar er að ganga í gegnum vitundarvakningu um málefni sem tengjast kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun. Það er okkar markmið að tryggja að allir njóti verndar í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi.“
Þá kemur jafnframt fram í tilkynningunni að fyrirhugað sé að ráðið verði í stöðu samskiptaráðgjafans á næstunni og viðkomandi hefji formlega störf í næsta mánuði. Þá sé einnig ráðgert að opnaður verði fræðsluvefur um hlutverk ráðgjafans og verksvið.