Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hafa ákveðið að skipa starfshóp til að móta tillögur um aðgerðir til að treysta atvinnulíf og búsetu á Flateyri við Önundarfjörð í kjölfar snjóflóðsins þann 14. janúar síðastliðinn.
Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins í dag.
Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu er verkefni starfshópsins að kanna leiðir til að byggja upp traust íbúa Flateyrar á samfélagslegum innviðum og gera tillögur um aðgerðir sem treyst geta stoðir byggðarinnar.
Í starfshópnum eru:
- Teitur Björn Einarsson, lögmaður, fulltrúi fjármála- og efnahagsráðherra, formaður.
- Lísa Kristjánsdóttir, aðstoðarmaður forsætisráðherra.
- Hermann Sæmundsson, skrifstofustjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.
- Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
- Steinunn Guðný Einarsdóttir, varabæjarfulltrúi í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar.
Miðað er við að starfshópurinn skili tillögum sínum fyrir 1. mars næstkomandi.