Mikill meirihluti þeirra sem þátt tóku í atkvæðagreiðslu Eflingar um verkfallsaðgerðir gegn Reykjavíkurborg eða 95,5% hefur samþykkt verkfallsboðun.
Atkvæðagreiðslan stóð yfir í fimm daga og lauk á hádegi í dag, sunnudaginn 26. janúar.
Í tilkynningu frá Eflingu kemur fram að metþátttaka hafi verið í atkvæðagreiðslunni eða 59,2%. Alls voru 1.894 félagsmenn Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg á kjörskrá. Af þeim greiddi 1.121 atkvæði. Af greiddum atkvæðum samþykkti 1.071 verkfallsboðun. 34 á móti eða 3,1% og 16 tóku ekki afstöðu eða 1,4%.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fagnar því að félagsmenn hafi tekið undir tillögu samninganefndar um boðun verkfallsaðgerða. „Ég hef fundið fyrir gríðarlegum baráttuvilja meðal starfsmanna í fjölmörgum heimsóknum mínum á vinnustaði borgarinnar síðan í haust,“ er haft eftir henni í tilkynningu Eflingar. „Fólk er orðið langþreytt á því að vinna fyrir sultarlaunum við vaxandi álag og erfiðar aðstæður. Metkosningaþátttaka, svo ekki sé talað um yfirgnæfandi vilja til aðgerða, sýnir svo ekki verður um villst að við erum á réttri leið og höfum fjöldann á bakvið okkur. Með þennan vind í seglunum eru okkur allir vegir færir í baráttunni við borgina.“
Með atkvæðagreiðslunni hafa félgsmenn Eflingar samþykkt verkfallsboðun gagnvart Reykjavíkurborg. Formleg verkfallsboðun verður afhent borgaryfirvöldum og ríkissáttasemjara fyrir hádegi á morgun, mánudaginn 27. janúar.
Skipulag verkfallsaðgerða verður með eftirfarandi hætti:
· Þriðjudagur 4. febrúar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 12:30 og fram til klukkan 23:59.
· Fimmtudagur 6. febrúar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.
· Þriðjudagur 11. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 12:30 og fram til klukkan 23:59.
· Miðvikudagur 12. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.
· Fimmtudagur 13. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.
· Mánudagur 17. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og ótímabundið eftir það.