Öll skráningarskyld félög á Íslandi þurfa að upplýsa um nafn, lögheimili, kennitölu (eða TIN-númer ef um erlendan ríkisborgara er að ræða), ríkisfang eigenda sinna til ríkisskattsstjóra, sem ný er hluti af hinni nýju stofnun Skattinum, fyrir 1. mars næstkomandi. Auk þess þurfa þeir sem skráningin á við að gera grein fyrir eignarhlut, tegund eignarhalds og atkvæðavægi viðkomandi auk þess sem það þarf að framvísa gögnum sem staðfesta þær upplýsingar sem veittar eru og „sýna fram á að viðkomandi sé raunverulegur eigandi“.
Þetta kemur fram í frétt á vef ríkisskattstjóra þar sem minnt er á að skrásetning raunverulegra eigenda hefur loks verið fest í lög. Þar segir enn fremur að lögaðilar sem lögin ná til séu sjálfir ábyrgir fyrir því að afla upplýsinga um raunverulega eigendur sína. „Leiki vafi á því hver telst raunverulegur eigandi skráningarskylds lögaðila skal leita ráða hjá utanaðkomandi fagaðila, s.s. lögmanni, löggiltum endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki.“
Lög sem flýttu fresti sem félög hafa til þess að upplýsa um raunverulega eigendur sína til 1. mars næstkomandi voru samþykkt skömmu fyrir síðustu jól.
Flýtt vegna gráa listans
Þegar voru í gildi kvaðir um að upplýsa um raunverulega eigendur þegar nýtt félag er stofnað. Þær hafa verið í gildi frá 30. ágúst síðastliðnum og frá 1. desember hefur verið hægt að senda upplýsingar um hverjir þeir eru með rafrænum hætti til ríkisskattstjóra.
Ákveðið var að flýta þeim frest eftir að alþjóðlegur vinnuhópur um um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, Financial Action Task Force (FATF), setti Ísland á gráan lista fyrir að bregðast ekki nægilega vel við fjölmörgum athugasemdum samtakanna um brotalamir í vörnum gegn peningaþvætti á Íslandi.
Ein af athugasemdunum sem FATF gerði sneri að því að ekki þurfti að greina frá raunverulegum eigendum félaga á Íslandi.
Brotalamir í eftirliti banka
Á Íslandi hefur verið hægt að komast upp með það að fela eignarhald félaga, með ýmsum leiðum. Ein sú algeng leið var fólgin í því að láta félög, t.d. eignarhaldsfélög eða rekstrarfélög, vera í eigu erlendra félaga, sem voru síðan í eigu annarra erlendra félaga, sem voru í eigu sjóða í skattaskjólum þar sem engar eða litlar kröfur voru gerðar um skráningar og skil á gögnum. Þannig hefur verið verið hægt að fela hver raunverulegur eigandi félaga er.
Hér á landi hefur slíkt eftirlit aðallega verið á hendi banka. Í kjölfar þess að FATF gerði úttekt á Íslandi, og skilaði þeirri niðurstöðu vorið 2018 að eftirlit Íslands með peningaþvætti fengi falleinkunn, þá hóf Fjármálaeftirlitið (FME) að gera athuganir á íslenskum fjármálafyrirtækjum og getu þeirra til að verjast peningaþvætti.
Niðurstaðan, sem birt var helgina fyrir jólin 2019, var sú að Fjármálaeftirlitið gerði athugasemdir við mat allra íslensku viðskiptabankanna á upplýsingum um raunverulega eigendur fjármuna eða félaga sem eru, eða hafa verið, í viðskiptum við þá. Í niðurstöðum eftirlitsins á athugun eftirlitsins á peningaþvættisvörnum þeirra voru gerðar athugasemdir við þeir hafi ekki metið upplýsingar um raunverulega eigendur með sjálfstæðum hætti.