Ákvörðun var tekin um skipun nýs útvarpsstjóra á stjórnarfundi í RÚV í gær. Samkvæmt heimildum Kjarnans var góð samstaða um ráðninguna innan stjórnarinnar, en einn stjórnarmaður greiddi ekki atkvæði.
Líkt og Kjarninn greindi frá í síðustu viku þá var Stefán Eiríksson, borgarritari Reykjavíkur og fyrrverandi lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, á meðal umsækjenda. Heimildir Kjarnans herma að hann hafi verið einn þeirra fjögurra sem eftir stóðu á þeim tíma. Hinir þrír hafi verið Kolbrún Halldórsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra og fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, Karl Garðarsson, framkvæmdastjóri útgáfufélags DV og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, og Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri í Skútustaðarhreppi.
Kári Jónasson, formaður stjórnar RÚV, sagði við Kjarnann á föstudag að hann vonaðist til að hægt yrði að klára ráðningarferlið í þessari viku. Það liggur nú fyrir, eftir stjórnarfund sem fór fram í gærkvöldi.
41 sótti um
Starfið var auglýst eftir að Magnús Geir Þórðarson sagði starfi sínu lausu, en hann var skipaður þjóðleikhússtjóri frá og með 1. janúar næstkomandi. Magnús Geir hafði gegnt stöðu útvarpsstjóra frá árinu 2014.
Capacent hefur haldið utan um ráðningarferlið og verið stjórn RÚV, sem tók endanlega ákvörðun um hver fái starfið, til ráðgjafar í því. Alls sóttu 41 um það. Ákveðið var að birta ekki lista yfir nöfn umsækjenda.
Á meðal annarra en ofangreindra sem staðfest er að sóttu um starfið eru Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra, Elín Hirst, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokks og áður fréttastjóri hjá RÚV, Kolbrún Halldórsdóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna og umhverfisráðherra, Herdís Kjerulf Þorgeirsdótatir, doktor í lögum með tjáningarfrelsi fjölmiðla sem sérsvið og er einnig menntaður stjórnmálafræðingur, Baldvin Þór Bergsson, dagskrárstjóri númiðla RÚV, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og fyrrverandi ritstjóri Kvennablaðsins, og Kristín Þorsteinsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins.
Í auglýsingu sagði að útvarpsstjóri hafi það hlutverk að „framfylgja stefnu Ríkisútvarpsins og gæta hagsmuna þess í hvívetna. Leitað er að öflugum og reyndum leiðtoga til að stýra RÚV inn í nýja tíma miðlunar“.
Hæfnikröfur eru háskólamenntun sem nýtist í starfi, en ekki er tiltekið hvaða stigi háskólamenntunar umsækjandi þarf að vera búinn að ljúka. Þá var gerð krafa um reynslu af stjórnun og rekstri, leiðtogahæfileika og góða hæfni í mannlegum samskiptum, skilning og áhuga á nýjum miðlum og reynslu af stefnumótunarvinnu, nýsköpun og innleiðingu stefnu.
Viðkomandi þarf auk þess að vera með þekkingu og reynslu af fjölmiðlum, menningu og samfélagsmálum, þarf að búa yfir góðri tungumálakunnáttu og góðri hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.