Nýr útvarpsstjóri RÚV kynntur í dag

Stjórn RÚV tók ákvörðun um næsta útvarpsstjóra á fundi í gærkvöldi. Fjórir stóðu eftir í síðustu viku. Nýr útvarpsstjóri verður kynntur á næstu klukkutímum.

ruv-i-desember_15811781087_o.jpg
Auglýsing



Ákvörðun var tekin um skipun nýs útvarps­stjóra á stjórn­ar­fundi í RÚV í gær. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans var góð sam­staða um ráðn­ing­una innan stjórn­ar­inn­ar, en einn stjórn­ar­maður greiddi ekki atkvæð­i. 

Líkt og Kjarn­inn greindi frá í síð­ustu viku þá var Stefán Eiríks­son, borg­ar­rit­ari Reykja­víkur og fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á meðal umsækj­enda. Heim­ildir Kjarn­ans herma að hann hafi verið einn þeirra fjög­urra sem eftir stóðu á þeim tíma. Hinir þrír hafi verið Kol­brún Hall­dórs­dótt­ir, fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna, Karl Garð­ars­son, fram­kvæmda­stjóri útgáfu­fé­lags DV og fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Þor­steinn Gunn­ars­son, sveit­ar­stjóri í Skútu­stað­ar­hreppi. 

Kári Jón­as­son, for­maður stjórnar RÚV, sagði við Kjarn­ann á föstu­dag að hann von­að­ist til að hægt yrði að klára ráðn­ing­ar­ferlið í þess­ari viku. Það liggur nú fyr­ir, eftir stjórn­ar­fund sem fór fram í gær­kvöld­i. 

41 sótti um

Starfið var aug­lýst eftir að Magnús Geir Þórð­­­­­ar­­­­­­­son sagði starfi sínu lausu, en hann var skip­aður þjóð­­­­­­leik­hús­­­­­­stjóri frá og með 1. jan­úar næst­kom­and­i. ­­Magnús Geir hafði gegnt stöðu út­varps­­­­­­stjóra frá árinu 2014. 

Capacent hefur haldið utan um ráðn­­ing­­ar­­ferlið og verið stjórn RÚV, sem tók end­an­lega ákvörðun um hver fái starf­ið, til ráð­gjafar í því. Alls sóttu 41 um það. Ákveðið var að birta ekki lista yfir nöfn umsækj­enda.

Á meðal ann­arra en ofan­greindra sem stað­­fest er að sóttu um starfið eru Svan­hildur Hólm Vals­dótt­ir, aðstoð­­ar­­maður Bjarna Bene­dikts­­sonar fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, Elín Hir­st, fyrr­ver­andi þing­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks og áður frétta­­stjóri hjá RÚV, Kol­brún Hall­­dór­s­dótt­ir, fyrr­ver­andi þing­­maður Vinstri grænna og umhverf­is­ráð­herra, Her­­­dís Kjerulf Þor­­­geir­s­dóta­t­ir, doktor í lögum með tján­ing­­­­ar­frelsi fjöl­miðla sem sér­­­­­­­svið og er einnig mennt­aður stjórn­­­­­mála­fræð­ing­­­ur, Bald­vin Þór Bergs­­­son, dag­­­skrár­­­stjóri núm­iðla RÚV, Stein­unn Ólína Þor­­­­steins­dótt­ir, leik­­­­kona og fyrr­ver­andi rit­­­­stjóri Kvenna­blaðs­ins, og Kristín Þor­­steins­dótt­ir, fyrr­ver­andi rit­­stjóri Frétta­­blaðs­ins. 

Auglýsing
Upp­­­­haf­­­­legur umsókn­­­­­ar­frestur rann út 2. des­em­ber en ákveðið var að fram­­­­­lengja hann um viku, eða til 9. des­em­ber. 

Í aug­lýs­ing­u sagði að útvarps­­­­­stjóri hafi það hlut­verk að „fram­­­fylgja stefnu Rík­­­is­út­­­varps­ins og gæta hags­muna þess í hví­vetna. Leitað er að öfl­­­ugum og reyndum leið­­­toga til að stýra RÚV inn í nýja tíma mið­l­un­­­ar“.

Hæfn­i­­­kröfur eru háskóla­­­menntun sem nýt­ist í starfi, en ekki er til­­­­­tekið hvaða stigi háskóla­­­mennt­unar umsækj­andi þarf að vera búinn að ljúka. Þá var gerð krafa um reynslu af stjórnun og rekstri, leið­­­toga­hæfi­­­leika og góða hæfni í mann­­­legum sam­­­skipt­um, skiln­ing og áhuga á nýjum miðlum og reynslu af stefn­u­­­mót­un­­­ar­vinnu, nýsköpun og inn­­­­­leið­ingu stefn­u. 

Við­kom­andi þarf auk þess að vera með þekk­ingu og reynslu af fjöl­mið­l­um, menn­ingu og sam­­­fé­lags­­­mál­um, þarf að búa yfir góðri tung­u­­­mála­kunn­áttu og góðri hæfni til að tjá sig í ræðu og rit­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent