Minni innflutningur og minni veiðar leiddu til afkomuviðvörunar hjá Eimskip

Hagnaður Eimskips verður lægri á síðasta ári en áður var áætlað. Hlutabréfaverð í félaginu hefur lækkað um 16 prósent á einu ári.

Eimskip
Auglýsing

Bráða­birgða­tölur fyrir fjórða árs­fjórð­ung síð­asta árs gefa til kynna að afkoma Eim­skips verði lak­ari en áður var gert ráð fyr­ir. Fyrri spá félags­ins áætl­aði að EBIT­DA-hagn­aður Eim­skips – hagn­aður fyrir skatta, afskriftir og fjár­magnsliði – í fyrra yrði 52 til 55 millj­ónir evra, 7,1 til 7,5 millj­arðar króna. Ný áætlun gerir hins vegar ráð fyrir því að EBIT­DA-hagn­að­ur­inn verði minni, eða 6,7 til 6,8 millj­arðar króna. Töl­urnar taka ekki til­lit til áhrifa IFR­S16-­reikniskila­stað­als á afkom­una. 

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar frá Eim­skip segir að helstu ástæður þess að afkoman er lægri sé minna magn í gáma­sigl­ingum félags­ins sem hafi veirð um tíu pró­sent lægra á fjórða árs­fjórð­ungi miðað við sama tíma árið á und­an. Sú minnkun varð að megn­inu til á síð­ustu vikum árs­ins 2019. „Skýr­ingar má helst rekja til minni inn­flutn­ings til Íslands en búist var við og minni veiða við Ísland á tíma­bil­inu sem leiddi til mun minni útflutn­ings auk nei­kvæðra áhrifa á umsvif í akstri inn­an­lands. Þannig má nefna að land­aður afli í októ­ber og nóv­em­ber sam­kvæmt gögnum Fiski­stofu var um 19 pró­sent og 29 pró­sent lægri en í sömu mán­uðum árið áður sem hafði nei­kvæð áhrif á útflutn­ing í nóv­em­ber og des­em­ber.“

Auglýsing
Eimskip segir að til við­bótar hafi það reynst dýr­ara en áætlað var að loka skrif­stofu félags­ins í Belgíu auk þess sem tölu­verður kostn­aður féll til þegar að Eim­skip færði við­komur til nýs þjón­ustu­að­ila í Rott­er­dam fyrr en áætlað var vegna lok­unar og verk­falla hjá þáver­andi þjón­ustu­að­ila. „Fé­lagið hefur staðið í ýmsum hag­ræð­ing­ar­að­gerðum und­an­farið ár og m.a. breytt gáma­sigl­inga­kerf­inu með það fyrir augum að bregð­ast við minna inn­flutn­ings­magni. Þær aðgerðir eru að skila sér en vega ekki nægi­lega á móti sveiflum í magni eins og raunin varð á síð­ustu vikum árs­ins.“

Stærsti eig­andi EIm­skips er Sam­herji með 27,1 pró­sent eign­ar­hlut. Bald­vin Þor­­­­­steins­­­­­son, sonur Þor­­­­­steins Más Bald­vins­­son­­ar, fyrr­ver­andi for­­stjóra Sam­herja, og fram­­­­kvæmda­­­­stjóri við­­­­skipta­­­­þró­unar hjá fyr­ir­tæk­inu, er stjórn­­­­­­­ar­­­­for­­­­maður Eim­­­­skips og í jan­úar í fyrra var Vil­helm Már Þor­­­­steins­­­­son, frændi þeirra, ráð­inn sem for­­­­stjóri skipa­­­­fé­lags­ins. 

Hluta­bréfa­verð í Eim­skip hefur lækkað um tæp 16 pró­sent á síð­ast­liðnu ári. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent