Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir, mannréttindalögmaður, fyrrverandi ritstjóri og útgefandi, gagnrýnir val stjórnar RÚV á nýjum útvarpsstjóra í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Hún telur meðal annars að stjórn ríkisútvarpsins hafi markvisst útilokað ákveðnar konur á lokametrunum ráðningarferlisins til að forðast óhagstæðan samanburð við þann sem ráðinn var í því skyni að hindra jafnréttiskærur.
Alls sótti 41 um starfið og var Herdís meðal umsækjenda. Stefán Eiríksson, borgarritari Reykjavíkur og fyrrverandi lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, var ráðinn í starfið í lok janúar.
Krafan um konu í stól útvarpsstjóra tifandi tímasprengja
Herdís bendir á að það sé „meir en aldarfjórðungur síðan Hæstiréttur kvað jafnréttislög þýðingarlítil nema meginreglur væru skýrðar svo að veita skyldi konu starf ef hún er að minnsta kosti jafnt að því komin hvað varðar menntun og annað sem máli skiptir og karlmaður sem við hana keppir ef á starfssviðinu eru fáar konur. Í níutíu ára sögu ríkisútvarpsins hefur engin kona gegnt stöðu útvarpsstjóra. Ellefti karlinn var ráðinn útvarpsstjóri í vikunni andspænis flóru fremstu fjölmiðlakvenna landsins.“
Hún segir að þegar staðan var auglýst laus til umsóknar hafi krafan um konu í stól útvarpsstjóra verið orðin tifandi tímasprengja. Yrði karl tekinn umfram konu í stöðuna þyrfti hann að hafa augljósa yfirburði á þeim sviðum sem gerð hafi verið að skilyrði.
Hvaða yfirburðir réðu ráðningu ellefta karlsins í stöðu útvarpsstjóra?
„Margar færustu fjölmiðlakonur landsins sóttu um starfið en engin þeirra komst áfram eftir fyrsta viðtal. Þrír karlar og ein kona rötuðu í lokaúrtakið. Konur sem eiga að baki áratuga reynslu sem ritstjórar, fréttastjórar, útgefendur, dagskrárgerðarmenn, fréttamenn, rithöfundar, fræðimenn og stjórnendur hljóta að spyrja hvað hafi legið til grundvallar valinu í lokaúrtakið því ekki voru það hæfnis- og kynjasjónarmið,“ skrifar hún og bætir því við að auk þess hafi krafan um sanngjarnt og gagnsætt ráðningarferli verið að engu höfð.
Herdís segir að svo virðist sem stjórn ríkisútvarpsins hafi markvisst útilokað þessar konur á lokametrunum til að forðast óhagstæðan samanburð við þann sem ráðinn var í því skyni að hindra jafnréttiskærur.
Eftir standi ein spurning sem hún beinir til stjórnar RÚV en hún spyr hvaða umframhæfnisþættir og yfirburðir hafi ráðið ráðningu ellefta karlsins í stöðu útvarpsstjóra.