Yfir 17.200 manns hafa skrifað undir áskorun þess efnis að íslensk stjórnvöld virði Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og hætti við brottvísun Muhammeds Zohair Faisal og fjölskyldu hans á morgun, 3. febrúar.
Haldinn var sérstakur fundur í dag á skólalóð Vesturbæjarskóla til að sýna samstöðu og kærleik og til að sýna stjórnvöldum að brottvísunin væri ekki það sem fólkið vildi. Eftir fundinn verða undirskriftirnar afhentar niðri í dómsmálaráðuneyti klukkan 15:30.
Í áskoruninni segir að í Pakistan bíði þeirra ekkert nema óvissa en þangað hafi drengurinn aldrei komið og foreldrarnir ekki í tíu ár. Þau hafi ástæðu til að óttast hvað tekur við þeim í Pakistan og staða barnsins verði miklu verri en hér á landi.
Einstaklega heillandi strákur, brosmildur, hlýr og lífsglaður
„Muhammed er einstaklega heillandi strákur, brosmildur, hlýr og lífsglaður. Hér hefur Muhammed búið í meira en tvö ár og tengst samfélaginu sterkum böndum. Hann er búinn að eignast marga vini, leikskólafélaga á Dvergasteini og skólafélaga í Vesturbæjarskóla og Skýjaborgum. Hann talar lýtalausa íslensku, er frábær námsmaður svo eftir er tekið og hefur tekist að bræða hjörtu allra þeirra sem hafa kynnst honum,“ segir í áskoruninni.
Þá er bent á að Barnasáttmálinn kveði á um að það sem barni er fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang í ákvörðunum stjórnvalda. Það feli meðal annars í sér að tryggja líf barns, þroska og öryggi, óháð lagalegri stöðu eða athafna foreldra hans eða hennar.
Þegar málsmeðferð ungs barns hefur staðið yfir í rúmlega tvö ár beri stjórnvöld ríkar skyldur gagnvart barninu, sem dvalið hefur hér stóran hluta ævi sinnar og aldrei séð heimaland foreldranna. „Íslensk stjórnvöld hafa gefið það út að Ísland skuli verða besta land í heimi fyrir börn. Sýnum það í verki.“