Rúmlega 17.000 skora á stjórnvöld að hætta við brottvísun

„Í Pakistan bíður þeirra ekkert nema óvissa en þangað hefur drengurinn aldrei komið og foreldrarnir ekki í tíu ár. Þau hafa ástæðu til að óttast hvað tekur við þeim í Pakistan og staða barnsins verður miklu verri en hér á landi.“

Muhammed Zohair Faisal
Muhammed Zohair Faisal
Auglýsing

Yfir 17.200 manns hafa skrifað undir áskorun þess efnis að íslensk stjórn­völd virði Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna og hætti við brott­vísun Muhammeds Zohair Fai­sal og fjöl­skyldu hans á morg­un, 3. febr­ú­ar.

Hald­inn var sér­stakur fundur í dag á skóla­lóð Vest­ur­bæj­ar­skóla til að sýna sam­stöðu og kær­leik og til að sýna stjórn­völdum að brott­vís­unin væri ekki það sem fólkið vildi. Eftir fund­inn verða und­ir­skrift­irnar afhentar niðri í dóms­mála­ráðu­neyti klukkan 15:30.

Í áskor­un­inni segir að í Pakistan bíði þeirra ekk­ert nema óvissa en þangað hafi dreng­ur­inn aldrei komið og for­eldr­arnir ekki í tíu ár. Þau hafi ástæðu til að ótt­ast hvað tekur við þeim í Pakistan og staða barns­ins verði miklu verri en hér á landi.

Auglýsing

Ein­stak­lega heill­andi strák­ur, brosmild­ur, hlýr og lífs­glaður

„Mu­hammed er ein­stak­lega heill­andi strák­ur, brosmild­ur, hlýr og lífs­glað­ur. Hér hefur Muhammed búið í meira en tvö ár og tengst sam­fé­lag­inu sterkum bönd­um. Hann er búinn að eign­ast marga vini, leik­skóla­fé­laga á Dverga­steini og skóla­fé­laga í Vest­ur­bæj­ar­skóla og Skýja­borg­um. Hann talar lýta­lausa íslensku, er frá­bær náms­maður svo eftir er tekið og hefur tek­ist að bræða hjörtu allra þeirra sem hafa kynnst hon­um,“ segir í áskor­un­inni.

Þá er bent á að Barna­sátt­mál­inn kveði á um að það sem barni er fyrir bestu skuli ávallt hafa for­gang í ákvörð­unum stjórn­valda. Það feli meðal ann­ars í sér að tryggja líf barns, þroska og öryggi, óháð laga­legri stöðu eða athafna for­eldra hans eða henn­ar.

Þegar máls­með­ferð ungs barns hefur staðið yfir í rúm­lega tvö ár beri stjórn­völd ríkar skyldur gagn­vart barn­inu, sem dvalið hefur hér stóran hluta ævi sinnar og aldrei séð heima­land for­eldr­anna. „Ís­lensk stjórn­völd hafa gefið það út að Ísland skuli verða besta land í heimi fyrir börn. Sýnum það í verki.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent