Átján þingmenn hafa óskað eftir því að Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, flytji Alþingi skýrslu um samanburð á greiðslum Samherja fyrir veiðirétt í Namibíu og á Íslandi á grundvelli upplýsinga frá Fiskistofu og í þeim skjölum sem RÚV fjallaði nýlega um í fréttaskýringaþættinum Kveik.
Fyrsti flutningsmaður skýrslubeiðninnar er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttur, formaður Viðreisnar, en með henni eru sautján þingmenn úr Viðreisn, Pírötum, Samfylkingunni og þingmanni utan flokka.
Í greinargerð með skýrslubeiðninni segir að ákvörðun veiðigjalda hafi lengi verið ágreiningsmál í íslenskum stjórnmálum. Ekki hafi verið meirihluti fyrir því að láta gjald fyrir afnot af sameiginlegri auðlind landsmanna ráðast á markaði þar sem tiltekinn hluti veiðiheimilda yrði ár hvert boðinn til sölu til ákveðins tíma. Þess í stað hafi gjaldið verið ákveðið með lögum, sem sætt hafa reglulegum breytingum.
Endurgjald fyrir einkaafnot af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar háð pólitísku mati
„Endurgjald fyrir einkaafnot af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar hefur þannig verið háð pólitísku mati. Það pólitíska mat hefur aftur í verulegum atriðum byggst á áliti þeirra hagsmunaaðila í útgerð sem eru fulltrúar þeirra fyrirtækja sem gjaldið greiða. Með öðrum orðum hafa verið bein tengsl á milli þess sem útgerðirnar hafa talið sig geta greitt og þess sem meirihluti á Alþingi hverju sinni hefur talið að þær gætu greitt,“ segir í greinargerðinni.
Þær upplýsingar sem fram hafi komið í svokölluðum Samherjaskjölum, sem RÚV fjallaði um í fréttaskýringaþættinum Kveik, gefi tilefni til að bera saman hvað eitt af stærstu og áhrifaríkustu fyrirtækjunum á þessu sviði sé reiðubúið til að greiða fyrir veiðirétt á Íslandi og í Namibíu. Eftir yfirlýsingar ráðherra bæði í fjölmiðlum og á þingi sé afar ólíklegt að ríkisstjórnin hafi frumkvæði að því að kanna þennan mikilvæga þátt málsins til hlítar.
Samanburðarathugunin verði unnin af óháðum aðila
Samanburður af þessu tagi á, samkvæmt flutningsmönnum beiðninnar, að geta stuðlað að málefnalegri umræðu um það mat sem ákvörðun veiðigjalda byggist á.
„Í Samherjaskjölunum kemur fram að greiðsla fyrir veiðirétt í Namibíu hefur byggst á beinum greiðslum fyrir veiðirétt og sérstökum greiðslum til þeirra sem ráðið hafa mestu um úthlutun veiðiréttarins.“
Að mati skýrslubeiðenda færi best á því að samanburðarathugunin verði unnin af óháðum aðila. „Rétt þykir að þeir óháðu aðilar taki heildarfjárhæð beggja þessara þátta með í samanburðinum. Einnig telja skýrslubeiðendur æskilegt að samráð verði haft við þingflokka um þá óháðu aðila sem fengnir verða í þessa þýðingarmiklu vinnu.“