Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Ásthildi Knútsdóttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu lýðheilsu og forvarna í heilbrigðisráðuneytinu til næstu fimm ára.
Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.
Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að ráðherra hafi skipað Ásthildi að undangengnu mati ráðgefandi nefndar sem metur hæfni umsækjenda. Niðurstaða nefndarinnar hafi verið sú að Ásthildur væri mjög vel hæf til að gegna starfinu.
„Ásthildur er hjúkrunarfræðingur að mennt með MBA í stjórnun frá University of St. Thomas í Minneapolis. Hún hefur starfað sem settur skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu frá 1. apríl 2019, starfað um árabil sem sérfræðingur í sama ráðuneyti og einnig gegnt stöðu sem staðgengill skrifstofustjóra. Á árunum 2003 til 2006 var Ásthildur deildarfulltrúi heilbrigðisráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins hjá Fastanefnd Íslands í Genf. Þar hafði hún m.a. umsjón með málefnum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vegna setu Íslands í framkvæmdastjórn stofnunarinnar,“ segir á vef Stjórnarráðsins.
Þá kom fram í mati nefndarinnar sem mat hæfni umsækjenda að Ásthildur hefði starfað lengi innan Stjórnarráðsins og byggi því að góðri þekkingu og reynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu. Hún hefði einnig mjög langa starfsreynslu á heilbrigðissviði og áralanga reynslu af alþjóðlegu samstarfi á sviði heilbrigðismála.
Í niðurstöðu nefndarinnar segir að Ásthildur hafi mikla yfirsýn og þekkingu á sviði lýðheilsu, forvarna og heilbrigðismála almennt, bæði hvað varðar stefnumótun og faglega greiningu. Þess er einnig getið sérstaklega að hún hafi að sögn umsagnaraðila óvenjulega góða hæfni í mannlegum samskiptum, láti vel að leiða saman ólík sjónarmið og ná sameiginlegri niðurstöðu.