Seðlabankinn lækkar vexti um 0,25 prósentustig

Seðlabanki Íslands hefur lækkað meginvexti sína, oft kallaðir stýrivextir, um 0,25 prósentustig. Þeir erun nú 2,75 prósent.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur lækkað meg­in­vexti sína, oft kall­aðir stýri­vext­ir, úr 3,0 pró­sentum í 2,75 pró­sent. Sumir grein­ing­ar­að­ilar höfðu búist við þessu skrefi, en almennt var talið að vöxtum yrði haldið óbreytt­u­m. 

Alls hafa stýri­vextir því  lækkað um 1,75 pró­­sent­u­­stig frá því í maí síð­­ast­liðnum þegar yfir­­stand­andi vaxta­­lækk­­un­­ar­­ferli hófst. ­­Skömmu áður, í apr­íl, höfðu hinir svoköll­uðu lífs­kjara­­samn­ingar verið und­ir­­rit­að­­ir. Hluti af því sam­komu­lagi var að skipa sér­­staka for­­send­u­­nefnd, sem í sitja þrír full­­trúar atvinn­u­rek­enda og þrír full­­trúar verka­lýðs­hreyf­­ing­­ar­inn­­ar, til að fylgj­­ast með hvort að for­­sendur samn­ing­anna væru að halda. Ein slík for­­senda var lækkun stýri­­vaxta, sem þá voru 4,5 pró­­sent. 

Ekki var til­­­greint sér­­stak­­lega um það opin­ber­­lega hversu mikið vext­irnir þyrftu að lækka til að for­­sendur héldu en Kjarn­inn greindi frá því 4. apríl síð­­ast­lið­inn að gert hafi verið hlið­­­ar­­­sam­komu­lag, svo­­­kallað „skúffu­­­sam­komu­lag“ sem er ekki hluti af opin­berum kjara­­­samn­ingi, sem fól í sér að vextir yrðu að lækka um 0,75 pró­­­sent­u­­­stig fyrir sept­­­em­ber 2020, þegar fyrsta end­­­ur­­­skoðun sér­­­stakrar for­­­send­u­­­nefndar mun eiga sér stað, til að kjara­­­samn­ingar hald­i. 

Vext­irnir voru búnir að lækka niður um það í júní 2019, 15 mán­uðum áður en fyrsta end­­ur­­skoð­unin mun eiga sér stað, og hafa haldið áfram að lækka síð­­­an. 

Minni hag­vöxtur í ár en áður var talið

Í til­kynn­ingu frá Seðla­bank­anum vegna þessa segir að vís­bend­ingar séu um að hag­vöxtur í fyrra hafi verið heldur meiri en áður var talið en horfur fyrir þetta og næsta ár versni sam­kvæmt nýrri þjóð­hags­spá Seðla­bank­ans sem birt er í febr­ú­ar­hefti Pen­inga­mála. Þar er gert ráð fyrir að hag­vöxtur verði ein­ungis 0,8 pró­sent í ár en í nóv­em­ber­spá bank­ans var búist við 1,6 pró­sent vexti. Lak­ari horfur megi fyrst og fremst rekja til erf­ið­ari stöðu útflutn­ings­at­vinnu­greina og versn­andi fjár­mögn­un­ar­skil­yrða inn­lendra fyr­ir­tækja.

Auglýsing
Í til­kynn­ing­unni er rakið að verð­bólga hafi minnk­aði hratt er leið á síð­asta ár og var komin í verð­bólgu­mark­mið á síð­asta fjórð­ungi árs­ins. „Hún hélt áfram að minnka í jan­úar og var 1,7 pró­sent sem er minnsta verð­bólga sem mælst hefur síðan haustið 2017. Und­ir­liggj­andi verð­bólga hefur einnig minnkað og er nú við verð­bólgu­mark­mið eins og flestir mæli­kvarðar á verð­bólgu­vænt­ing­ar. Sam­kvæmt nýrri spá Seðla­bank­ans verður verð­bólga minni en spáð var í nóv­em­ber og verður undir mark­miði á meg­in­hluta spá­tím­ans.“

Seðla­bank­inn segir að pen­inga­stefnan muni á næst­unni ráð­ast af sam­spili þró­unar efna­hags­um­svifa ann­ars vegar og verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga hins veg­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent